Efni eða efnablöndur (gas, vökvi eða þurrefni) sem valda eða stuðla að bruna annars efnis.

Dæmi:
Sótthreinsitöflur og vökvar, bleikiefni, súrefnisgas notað fyrir öndunarerfiðleika.

Varúðarreglur:
Forðist hita og loga. Reykið ekki nálagt þessum vörum. Geymið fjarri eldfimum vörum. Mælt er með notkun hlífðarhanska og hlífðargleraugna ef hætta er á að efnið/efnablandan slettist í augu.

Hætta:
Eldnærandi efni eru ekki endilega eldfim sjálf en geta stuðlað að myndun elds og magnað hann. Ef eldur kviknar út frá þessum efnum skal slökkva hann með dufti, froðu, koltvísýringi, eldteppum eða vatnsúða. Ekki beina vatni að eldinum þar sem það getur breitt út eldinn. Færið vöruna frá hættusvæðinu ef slíkt er mögulegt án þess að auka áhættu.

Vefsíða: http://www.ust.is/einstaklingar/graenn-lifsstill/laerdu-ad-thekkja-merkin/haettumerki/

Skilaboð: