Eden garðurinn er meira en bara grænn þemagarður! Hugmyndafræðin á bak við Eden garðinn í Cornwell í Englandi er að tengja saman jurtir, fólk og landsvæði heimsins. Í þessari viku var kynnt ný viðbót við garðinn, verkefnið The Edge en það mun gefa okkur mannfólkinu innsýn í hvað raunverulega mun geta falist í „heitari heimi“. Greinarhöfundur var staddur í London um síðustu helgi þar sem áherslan á „stop the global warming“ er stórt skrifað á auglýsingaveggi um alla borg enda hafa stjórnvöld hrint af stað metnaðarfullri áætlun um að minnka koltvísýringslosun. Hitinn fór upp í 25 gráður um helgina, sem telst hitabylgja og algerlega á skjön við árstíðina. Kynning verkefnisins ber því upp á viðeigandi tíma og því ljóst að „The Edge“ hlýtur að slá öll heimsóknarmet þegar hann er fullgerður, eins og Eden garðurinn hefur reyndar gert frá upphafi. Sjá nánar á edenproject.com.

Efri myndin er af borða á vefnum edenproject.com og sú neðri er af túlipana í hitabylgjunni í London þ. 14.04.2005. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
17. apríl 2007
Höfundur:
The Edge
Tilvitnun:
The Edge „Forskot á sæluna - The Edge“, Náttúran.is: 17. apríl 2007 URL: http://nature.is/d/2007/05/05/forskot-sluna-edge/ [Skoðað:9. júní 2026]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 5. maí 2007

Skilaboð: