Ítalska ríkisstjórnin hefur farið opinberlega fram á að fyrirtæki létti á reglum um klæðaburð á vinnustöðum yfir sumarmánuðina. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir „Að losa sig við bindið lækkar líkamshitannn sjálfkrafa um 2-3 gráður á Celsius. Sparsemi í rafmagnsknúinni loftkælingu sparar pening og verndar einnig umhverfið.“

Þó að þessi skilaboð frá ríkisstjórn Ítalíu virðist kannski ekki hafa mikil áhrif fyrir utan Ítalíu þá má segja að ríkisstjórninni hafi kannski tekist að ná athygli hinna „vel klæddu“. Ítalía er eitt af menguðustu löndum í Evrópusambandinu. Þrátt fyrir margar tilraunir til að fá Ítali til að minnka losun, er búist við að Ítalir fari yfir þau losunarmörk sem þeim hefur verið sett. Kannski virkar áeggjan ríkisstjórnarinnar til frjálsræðis í klæðaburði þannig að sá gríðarlegi fjöldi annars vel klæddra Ítala fer að hugsa meira um umhverfisáhrif neyslu og lifnaðarhátta sinna.

Auðvitað eru bindaframleiðendur óhressir yfir að vera orðnir blórabögglar og láta til sín heyra. Einn þeirra segir „Ég, bindaframleiðandi, er ábyrgur fyrir hlýnun loftslagsins. Nú getum við hamingjusamlega haldið áfram með lífstíl okkar, að nota bíla, olíu, hita- og kælikerfi. Við verðum bara að muna að nota ekki bindi, þá er allt í fína lagi“.

Þþtt af Treehugger.com.
Birt:
23. júlí 2007
Höfundur:
Erin Courtenay
Tilvitnun:
Erin Courtenay „Ítalir hvattir til að losa sig við bindin“, Náttúran.is: 23. júlí 2007 URL: http://nature.is/d/2007/07/23/talir-hvattir-til-losa-um-bindin/ [Skoðað:9. júní 2026]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: