Formaður Landverndar tekur ekki sæti sem varamaður í stjórn Landsvirkunar

Í yfirlýsingu frá Björgólfi Thorsteinssyni formanni Landverndar segir orðrétt:
Eins og kunngert hefur verið var ég skipaður af hálfu handhafa ríkisvaldsins í stjórn Landsvirkjunar sem varamaður á aðalfundi fyrirtækisins 18. þ.m. Málið hafði borið brátt að og átt sér stuttan aðdraganda. Eftir að hafa fengið hvatningu innan stjórnar Landverndar ákvað ég að gefa kost á mér, enda er það nokkurs virði að geta flutt sjónarmið Landverndar og umhverfisverndar almennt inn í stjórn Landsvirkjunar. Með þessu voru send ákveðin skilaboð. Stjórnir eru gjarnan skipaðar með það fyrir augum að ná fram ólíkum sjónarmiðum. Með þátttöku í stjórn var boðið tækifæri til að hafa áhrif.

Á reglulegum fundi stjórnar Landverndar 23. þ.m. gafst fyrst tækifæri til að fara yfir málið með stjórninni í heild en þá komu í ljós efasemdir innan stjórnar. Þar sem mér finnst mikilvægt að stjórn Landverndar sé samstillt um mikilvægt mál sem þetta, og þar sem mér er kappsmál að halda þeim góða starfsanda sem verið hefur innan samtakanna, hef ég ákveðið að taka ekki sæti sem varamaður í stjórn Landsvirkjunar. Hugmyndin var athyglisverð. Til eru fordæmi fyrir því út í heimi að formenn eða framkvæmdastjórar umhverfisverndarsamtaka sitji í stjórnum stórfyrirtækja. Ég þakka það traust sem mér hefur verið sýnt.

Birt:
29. apríl 2008
Tilvitnun:
Björgólfur Thorsteinsson „Formaður Landverndar afþakkar“, Náttúran.is: 29. apríl 2008 URL: http://nature.is/d/2008/04/29/formaour-landverndar-tekur-ekki-saeti/ [Skoðað:9. júní 2026]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: