Þarfnast náttúruvendarlög endurskoðunar?
Morgunverðarfundur um 37. grein náttúruverndarlaga
Í tilefni af 50 ára afmæli VSÓ Ráðgjafar býður fyrirtækið til síns þriðja morgunverðarfundar þriðjudaginn 20. maí kl 8:30-10:00 í Háteigi B á Grand Hótel, Reykjavík.
Í 37. grein náttúruverndarlaga nr. 44/1999 segir að vernda skuli ákveðnar jarðmyndanir og vistkerfi svo sem eldvörp, gervigíga og eldhraun, stöðuvötn og tjarnir, mýrar og flóa, fossa, hveri og aðrar heitar uppsprettur, sjávarfitjar og leirur.
VSÓ Ráðgjöf hefur ný lokið rannsókn á vægi þessarar lagagreinar í matsverkefnum og áhrifum hennar á ákvarðanir um matsskyldu, úrskurði í mati á umhverfisáhrifum, útfærslu framkvæmda og skilgreiningu mótvægisaðgerða. Rannsóknin var styrkt af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.
Dagskrá:
Forsendur 37. gr. náttúruverndarlaga og staða ákvæðisins í lagakerfinu, Sigrún Ágústsdóttir, lögfræðingur hjá Umhverfisráðuneytinu.
Friðun, verndun og 37. gr. náttúruverndarlaga, Ólafur Páll Jónsson, lektor í heimspeki við Kennaraháskóla Íslands.
Hefur 37. grein náttúruverndarlaga tilætluð áhrif? Auður Magnúsdóttir, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá VSÓ ráðgjöf.
Umræður, spurningar og svör.
Fundarstjóri: Stefán Gunnar Thors, umhverfishagfræðingur hjá VSÓ ráðgjöf.
Fundurinn er ætlaður opinberum aðilum, framkvæmdaraðilum, ráðgjöfum og öllum þeim sem láta sig umhverfismál varða. Aðgangur er í boði VSÓ
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir hádegi 19. apríl nk. með því að senda póst á bergny@vso.is.
Myndin er af Hrafnabjargarfossi. Ljósmynd: Ragnhildur Sigurðardóttir.
Birt:
Tilvitnun:
Bergný H. Steinsdóttir „Þarfnast náttúruvendarlög endurskoðunar?“, Náttúran.is: 14. maí 2008 URL: http://nature.is/d/2008/05/14/tharfnast-natturuvendarlog-endurskoounar/ [Skoðað:9. júní 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

