Kynningarfundir og umsagnarferli 2. áfanga Rammaáætlunar að hefjast
Í tilkynningu frá 2. áfanga Rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði segir:
- Kynningarfundur í Reykjavík á þriðjudaginn, 9. mars, kl. 14:00 í KHÍ
- Efnt verður til kynningarfunda víða um land á næstu vikum.
- Opið umsagnarferli um niðurstöður faghópa stendur yfir 8. mars - 19. apríl.
- Skýrslu og margskonar upplýsingar um niðurstöður faghópa er að finna á heimasíðunni rammaáætlun.is frá 8. mars. Þeir sem sótt hafa samráðsfundi verkefnisstjórnar fá póstsent eintak af skýrslunni eftir helgi.
Verkefnisstjórn 2. áfanga Rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði hefur starfað frá haustinu 2007. Markmið rammaáætlunar er að skapa forsendur fyrir sátt um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Í áætluninni skal leggja mat á og flokka virkjunarkosti, jafnt vatnsafls og háhita og áhrif þeirra á náttúrufar og menningarminjar, meðal annars með tilliti til orkugetu, hagkvæmni og annars þjóðhagslegs gildis, samhliða því að skilgreina og meta áhrif á hagsmuni allra þeirra sem nýtt geta þessi sömu gæði.
Í ársbyrjun 2008 setti stjórnin á laggirnar fjóra faghópa til að meta mögulega virkjunarkosti og verðmæti þeirra svæða sem verða fyrir áhrifum af framkvæmdum. Faghóparnir hafa nú lokið störfum og verða niðurstöður þeirra lagðar fram í opnu kynningar- og umsagnarferli sem standa mun í 6 vikur.
Fyrsti opni kynningarfundurinn um niðurstöður faghópanna verður í Skriðunni (í húsakynnum Kennaraháskólans við Stakkahlíð) þriðjudaginn 9. mars kl. 14:00. Fundurinn verður sendur beint út á netinu og er aðgangur að útsendingunni á vefsíðu rammaáætlunar, www.rammaáætlun.is.
Auk þessa fundar verður efnt til kynningarfunda víða um land. Næstu fundir verða haldnir laugardaginn 13. mars á Selfossi kl. 11:00 og á Kirkjubæjarklaustri kl. 17:00. Aðrir fundir verða auglýstir síðar.
Verkefnisstjórn hefur gefið út skýrslu, sem liggja mun frammi á vefsvæði rammaáætlunar, með kynningu á þeim virkjunarkostum/svæðum sem til umfjöllunar eru ásamt lýsingu á starfi, aðferðafræði og niðurstöðum faghópanna sem metið hafa svæðin og virkjunarkosti, hver á sínu sérsviði. Skýrslan er prentuð í takmörkuðu upplagi og verða prentuð eintök send þeim aðilum er sótt hafa kynningar og/eða samráðsfundi með verkefnisstjórn. Þeim sem vilja kynna sér efni skýrslunnar og annað ítarefni er beint á vefsíðuna rammaáætlun.is. Kynningarefnið verður komið upp á vefsíðuna mánudaginn 8. mars.
Í umsagnarferlinu er er leitað eftir athugasemdum og ábendingum um niðurstöður faghópanna. Öllum er heimilt að senda inn umsögn um niðurstöður faghópanna, en tímafrestur til þess er til 19. apríl nk. Umsagnir skal senda inn í tölvupósti á netfangið umsogn@rammaaaetlun.is en einnig má senda skriflegar umsagnir á póstfangið: Rammaáætlun, c/o Orkugarður, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík. Fyrirspurnir má senda á sama netfang.
Niðurstöður faghópa eru ekki lokaniðurstaða 2. áfanga rammaáætlunar. Að loknu umsóknarferlinu mun verkefnisstjórn nýta niðurstöður faghópanna og hafa umsagnir til hliðsjónar við að setja saman heildarniðurstöður áætlunarinnar og senda þær stjórnvöldum.
Birt:
Tilvitnun:
Bjartmar Alexandersson „Kynningarfundir og umsagnarferli 2. áfanga Rammaáætlunar að hefjast“, Náttúran.is: 4. mars 2010 URL: http://nature.is/d/2010/03/04/kynningarfundir-og-umsagnarferli-2-afanga-rammaaae/ [Skoðað:9. júní 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 6. mars 2010

