Íslandspóstur mun frá og með miðjum maí bjóða landsmönnum að afþakka fjölpóst með sérstakri merkingu á lúgum.

Undanfarið hafa verið kannaðir möguleikar á því að móta samræmt verklag um dreifingu á fjölpósti meðal stærri dreifingaraðila bréfa og blaða. Þar sem ekki er fyrirséð að samkomulag geti náðst um það efni innan eðlilegra tímamarka, hefur Íslandspóstur tekið ákvörðun um að gefa neytendum kost á því á ný að panta lúgumiða sem afþakkar allan fjölpóst.

Íslandspóstur dreifir um 12% af magni fjölpósts, sem kemur inn um lúgur landsmanna, ef fríblöð eru talin með. Bréfberar Íslandspósts munu við dreifingu fjölpósts virða þær óskir, sem lúgumiðinn ber með sér, en getur eðlilega ekki borið ábyrgð á öðrum dreifendum.

Upplýsingar um nánari tilhögun á afþökkun fjölpósts má fá hjá þjónustuveri Íslandspósts í síma 580 1200 og sömuleiðis munu þær verða birtar á heimasíðu félagsins innan tíðar.

Sjá tilkynningu frá Póst- og símamálastjórn um niðurstöðu nefndarinnar.
Sjá frétt á vef Talsmanns neytenda um málið.

Birt:
29. apríl 2008
Tilvitnun:
Ágústa Hrund Steinarsdóttir „Íslandspóstur býður afþökkun á fjölpósti“, Náttúran.is: 29. apríl 2008 URL: http://nature.is/d/2008/04/29/islandspostur-byour-afthokkun-fjolposti/ [Skoðað:9. júní 2026]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: