Unnið úr kortlagningu Michael Porter á íslenska jarðvarmaklasanum
Nýtum einstakt tækifæri til mótunar samstarfs sem leitt getur til virðisauka í jarðvarma
Iceland Geothermal stendur fyrir vinnustofu um virðisauka jarðvarma verður haldin miðvikudaginn 4. maí kl. 8:30-16:00 í Sunnusla, Radisson BLU Hótel Sögu.
Dagskrá:
8:30-8:40 Þórólfur Árnason, fundarstjóri; Opnun vinnustofu og verklag dagsins.
8:40-9:00 Gekon; Eru forsendur til staðar fyrir formlegt samstarf jarðvarmaklasans?
9:00-9:30 Davíð Lúðvíksson, SI; Upphaf - Þróun - Árangur. Sjávarútvegsklasi vs. jarðhitaklasi. Reynslusaga.
9:30-9:45 Hörður Arnarson, Landsvirkjun; Virðisauki í jarðvarma; Nú er lag.
9:45-10:00 Kaffihlé
10:00-11:45 Virðisauki í jarðvarma; Áskoranir og þarfir
− Skipulag og stjórnun jarðhitaverkefna (Mannvit)
− Fjármögnun (Íslandsbanki)
− Rannsóknir, undirbúningur og boranir (ÍSOR)
− Uppbygging og rekstur orkuvera (HS-Orka)
− Fjölnýting I; Raforka og hitaveitur (Orkuveita Reykjavíkur)
− Fjölnýting II; Matvælaframleiðsla / Ferðaþjónusta og heilbrigðismál (Íslensk matorka / Bláa Lónið)
− Jarðhiti og umhverfisáhrif
11:45-12:30 Hádegishlé; Borin verður fram sjávarréttarsúpa og brauð.
12:30-15:45 Umræður á hringborðum og í sal
Eitt svið verður til umræðu á hverju hringborði en sviðin eru eftirfarandi (með fyrirvara um þátttöku):
− Skipulag og stjórnun jarðhitaverkefna
− Fjármögnun
− Rannsóknir, undirbúningur og boranir
− Uppbygging og rekstur orkuvera
− Raforka og hitaveitur
− Matvælaframleiðsla
− Ferðaþjónusta og heilbrigðismál
− Jarðhiti og umhverfisáhrif
Eftirfarandi atriði verða tekin fyrir m.t.t. þess sviðs sem er til umfjöllunar á hverju borði:
1. Framtíðarsýn og sérstaða
2. Vandamál og hindranir
3. Lausnir og þróunarverkefni
15:45-16:00 Þórólfur Árnason; Samantekt, næstu skref og fundarlok.
Þátttaka:
Vinnustofan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir og þátttaka ókeypis. Allir sem hafa áhuga á málefnum og þróun jarðvarmans eru hvattir til að taka þátt.
Skráning fer fram til hádegis þriðjudaginn 3. maí á eftirfarandi tölvupóstfang: thora@gekon.is
Nánari upplýsingar:
Vinnustofan er skipulögð af fagráði jarðvarmaklasans, skipað 16. mars 2011, og Gekon ehf.
Nánari upplýsingar veita Hákon Gunnarsson, hakon@gekon.is, s. 571-1331 og Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, thora@gekon.is, s. 571-1332
Birt:
Tilvitnun:
Þóra Margrét Þorgeirsdóttir „Unnið úr kortlagningu Michael Porter á íslenska jarðvarmaklasanum“, Náttúran.is: 2. maí 2011 URL: http://nature.is/d/2011/05/01/unnid-ur-kortlagningu-michael-porter-islenska-jard/ [Skoðað:9. júní 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 1. maí 2011

