Ráðstefna með titlinum „Í byrjun tveggja alda - hugsjónir aldamótakynslóðarinnar bornar saman við samtímann og þá framtíðarsýn sem við okkur blasir“ verður haldin á Hrafnseyri í Arnarfirði, á fæðingarstað Rögnvaldar Ólafssonar að Núpi í Dýrafirði og í Edinborgarhúsinu á Ísafirði 6. og 7. september 2013.

Dagskráin samanstendur af fyrirlestrum, stuttum kynningum, pallborðsumræðum og samræðuhópum. Hún er hugsuð fyrir fagfólk jafnt sem almenning og verður lögð áhersla á að þátttakendur nái að hittast og ræða saman utan dagskrár með því m.a. að taka þátt í skoðunarferðum og hátíðardagskrá að Núpi.

„Stemmningin‟ var með tvennum hætti í byrjun þessara tveggja alda. Um aldamótin 1900 voru tækninýjungar að ryðja sér til rúms, svo virtist sem auðlindir væru óþrjótandi og helstu viðfangsefnin fólust í því að þróa tækni til að nýta þær. Miklir hugsjónamenn leituðust við að hanna umhverfi og þróa nýjungar sem gætu nýst sem flestum, stórvirki voru unnin með hagsmuni fjöldans í huga.

Nú eitt hundrað árum síðar fleygir tækninni hratt fram en flestar auðlindir jarðar eru í hættu. Hvað er til ráða? Getum við lært eitthvað af því fólki sem vann af mikilli hugsjón og bjartsýni í byrjun síðustu aldar?

Leitast verður við að fanga stemmninguna nú á tímum og bera saman við andrúmsloft og viðhorf sem réðu ríkjum hjá aldamótakynslóðinni. „Í skjóli‟ hógværa meistarans Rögnvaldar, verður manngert umhverfi á okkar norðlægu slóðum skoðað og skilgreint í samtíð og nálægri fortíð og gerð tilraun til að leggja drög að endurskoðaðri framtíðarsýn.

Fyrri ráðstefnudaginn verður fjallað um hvað var í gangi á Íslandi í byrjun 20. aldar, hvaða hugmyndafræði réði ríkjum við umhverfismótun, hvaðan fyrirmyndirnar komu og hvaða viðfangsefni og áherslur var verið að vinna með. Tekin verða dæmi úr verkum Rögnvaldar og mótunarferli vestfirskra bæja og byggða.

Seinni ráðstefnudaginn verður megináhersla lögð á hvar við stöndum í byrjun 21. aldarinnar, hvernig þessi mál hafa þróast á Íslandi og hvaða hugmyndafræði ræður ferðinni nú. Reynt verður að bera saman þessi tvö tímabil og skilgreina hvernig þau eru ólík og hvað þau eiga sameiginlegt og hvaða lærdóm má draga af viðhorfum og vinnubrögðum „aldamótakynslóðarinnar‟ við mótun nýrrar framtíðarsýnar.

Fyrirlesarar og samræðustjórar verða m.a. arkitektar, heimspekingar, mannfræðingar, sagnfræðingar, rithöfundar og samfélagsrýnar. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni verða eftirtaldir (með fyrirvara um breytingar):

  • Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur og prófessor - staðfest
  • Kjartan Árnason arkitekt - staðfest
  • Jóhann Páll Árnason prófessor emeritus í samfélagskenningum
  • Pétur H Ármannsson arkitekt og fræðimaður - staðfest
  • Hjálmar Sveinsson heimspekingur – staðfest
  • Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur - staðfest
  • Sigrún Birgisdóttir arkitekt og deildarforseti hönnunar- og arkitektúrdeildar LHÍ
  • Júlíana Gottskálksdóttir listfræðingur
  • Valdimar J Halldórsson mannfræðingur - staðfest
  • Páll Skúlason heimspekingur og prófessor
  • Sigurður Pétursson sagnfræðingur - staðfest
  • Egill Helgason þáttastjórnandi m.m.
  • Elísabet Gunnarsdóttir arkitekt - staðfest
  • Dagný Arnarsdóttir umhverfisfræðingur - staðfest
  • Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og samfélagsrýnir - staðfest
  • Sigfús Guðfinnsson bakari – staðfest
  • Peter Weiss norrænufræðingur – staðfest
  • Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt - staðfest

Prófessorsembætti tengt nafni Jóns Sigurðssonar er helsti samstarfsaðili stofnunar Rögnvaldar við undirbúning og framkvæmd ráðstefnunnar, aðrir samstarfsaðilar eru: Háskólasetur Vestfjarða, Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar, Menningarmiðstöðin Edinborg, Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri, Fræðslumiðstöð Ferðamálasamtök Bluessamband Vestfjarða, Menningarráð Vestfjarða, Hótel Núpur og fleiri.

Stjórn Stofnunar Rögnvaldar Á Ólafssonar og samstarfsaðilar vona að sem flestir sem vinna að umhverfismótun og aðrir þeir sem láta sig umhverfið varða sjái sér fært að taka þátt í ráðstefnunni.

Námari upplýsingar má nálgast á FB kynningarsíðu ráðstefnunnar.

Ljósmynd: Skrúður í Dýrafirði, ljósm. Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
1. september 2013
Höfundur:
Kjartan Árnason
Tilvitnun:
Kjartan Árnason „Í byrjun tveggja alda - á Hrafnseyri“, Náttúran.is: 1. september 2013 URL: http://nature.is/d/2013/09/01/i-byrjun-tveggja-alda-hrafnseyri/ [Skoðað:9. júní 2026]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: