Nýtni, nýtni, nýtni. Umhverfisvænt kynlíf gengur allt út á að vera ekki að henda hlutum endalaust. Það þarf vissulega að setja sig í stellingar og hafa opinn hug en allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi og allt er vænt sem vel er grænt.

4. Nýttu allt sem hendi er næst.

Eins og áður hefur komið fram er nýting lykilatriði í umhverfisvernd og því sömuleiðis hlutir sem hafa fleiri en eitt hlutverk. Það er hægt að nota ótrúlega marga hluti sem til eru á venjulegum heimilum í kynlífinu. Í staðinn fyrir að kaupa dýrar gerivörtuklemmur sem meiða veskið þitt (pun intended) getur þú notað þvottaklemmur. Svo þegar harði leikurinn er búinn og þú búin að jafna þig í smástund í fanginu á elskunni þinni, eða öfugt, getið þið svo staðið upp og hengt saman upp úr þvottavélinni.

Á fallegu sumarkvöldi er dásamlegt að sitja saman úti í garði, verönd eða svölum og súpa úr flösku með lífrænu rauðvíni eða hvítvíni. Á meðan spjallið þið um heima og geima, hrósið hvort öðru og daðrið. Þegar flaskan er búin og allir orðnir graðir má sem best setja hana upp í píku eða rass í kinky leik. Munið bara að setja smokk yfir (umhverfisvænan) því það er glatað ef lofttæmið í flöskunni festir hana upp í ykkur. Læknar og hjúkrunarfræðingar segja svoleiðis sögur af Slysó í partýum.
Kerti, sleifar, kökukefli, vasaljós, ryksugan, það má nota þetta allt og þar sem það er til heima hjá ykkur hvort eð er þá er það umhverfisvænna en að kaupa nýtt og nýtt. Svo er það líka svo ofsalega gaman og æsandi. (ATH. Aldrei, aldrei, aldrei nota sogið á ryksugunni í kynlífsleik. Það segir sig sjálft).

5. Stundaðu kynlíf úti í náttúrunni.

Ókei, það er kannski ekki “grænt” per se í þeim skilningi sem við erum að tala um hér. Það er bara svo ótrúlega gaman, frelsandi og hollt að láta vindinn leika um rassinn á sér, stráin strjúkast um bakið á sér og finna fyrir jörðinni undir sér í lostafullum ríðingum. Svo sparar það bæði hita og rafmagn og góður hjólatúr á áfangastað er punkturinn yfir i-ið.

6. Gefðu vinum þínum leikföngin sem þú ert búinn að fá nóg af.

Nei, ég er ekki að grínast. Leikfangaskipti eru miklu algengari en þú heldur og þó það sé líklega eðlilegt að hugsa “nei nú er Þyrnigerður Láfa algjörlega gengin af göflunum” þá þarf að velta möguleikanum fyrir sér með opnum hug. Lykilatriði í leikfangaskiptum er að bjóða upp á leikföng sem eru óbiluð og má sótthreinsa. Hreinlæti leikfanga er lykilatriði hvort sem þú ætlar að deila þeim eða ekki og það þarf að sótthreinsa allt öðru hvoru. Við gefum fötin okkar í nytjagáma og verslum notuð föt án umhugsunar, þau eru ekki sótthreinsuð eða yfirfarin, þau eru bara þvegin á 40°C í einhverri þvottavél. Hver segir að við séum skítugri að innan en utan?

Grafík: Af Píksöguvefnum. Hér nýtir risavaxin kona geimfara til sjálfsfróunar. pikusogur.wordpress.com

Birt:
13. júní 2012
Höfundur:
Þyrnigerður Láfa
Tilvitnun:
Þyrnigerður Láfa „Grænu ríðingarnar“, Náttúran.is: 13. júní 2012 URL: http://nature.is/d/2012/06/05/graenu-ridingarnar/ [Skoðað:9. júní 2026]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 5. júní 2012
breytt: 25. júní 2012

Skilaboð: