Samkvæmt Facebook hópnum „Búsáhaldabyltingin taka 2“ munu 294 hafa staðfest þátttöku sína á boðuðum mótmælum kl. 18:00 í dag. Aðrir 521 munu reyna að mæta (staðan kl. 13:40).

Í fundarboði segir:

„Sjálfstæðismenn ætla sér að tala fram að kosningum og koma þannig í veg fyrir að stjórnlagaþing verði sett á fót og að stjórnarskránni verði breytt.

Í því árferði sem nú ríkir þá er það ábyrgðarhluti hvers manns að leggja hönd á plóg og laga það sem aflaga hefur farið. Sjálfstæðismenn hafa hinsvegar engan áhuga á breytingum og vilja þeir bara meira af því sama þ.e. að viðhalda kerfi sem hefur hrunið til grunna.

Við Íslendingum blasir algjört kerfishrun. Sjálfstæðisflokkurinn hefur séð til þess með áralangri vanhæfni sinni. Stofnanir ríkisins eru meira og minna lamaðar eða ónýtar. Það gengur aldrei upp að 25% af þjóðinni (fylgi sjálfstæðisflokks samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum) kúgi hin 75 prósentin. Þjóðin mun aldrei skrifa undir það.

Að ganga gegn þjóð sinni líkt og Sjálfstæðismenn gera nú verður flokkað sem landráð á nýja Íslandi. Því hvetjum við alla til þess að mæta á Austurvöll þann 08.04.09 klukkan 18:00 með trommur, búsáhöld.

Landráðaflokkinn burt!“

Myndin er tekin á einum hitafundi byltingarinnar í janúar sl. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
8. apríl 2009
Tilvitnun:
Stuðningsmenn aðgerðarsinna „Búsáhaldabyltingin taka 2“, Náttúran.is: 8. apríl 2009 URL: http://nature.is/d/2009/04/08/busahaldabyltingin-taka-2/ [Skoðað:9. júní 2026]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: