Ríki Vatnajökuls stendur fyrir málþing á Vetrarhátíð WOW undir yfirsögninni \342\200\236Óður til hreindýrsins\342\200\234 en málþingið verður haldið í Nýheimum á Höfn í Hornafirði miðvikudaginn 31.mars nk.

Setning 10:30 Signý Ormarsdóttir Menningarráði Austurlands

  • Saga hreindýra á Íslandi, Skarphéðinn G. Þórisson Náttúrustofa Austurlands
  • Lifnaðarhættir hreindýra í nýju ljósi, Skarphéðinn G. Þórisson NA
  • Veiðistjórnun hreindýraveiða, Jóhann G. Gunnarsson UST
  • Hreindýr í ferðaþjónustu, Ásta Þorleifsdóttir Markaðsstofa Austurlands

12:00 - 13:00 Hádegishlé og handverksupplifun

  • Hreindýrabóndi á Íslandi- reynslusaga, Aðalsteinn Jónsson Klausturseli Jökuldal
  • Upplifun veiðimannsins, Emil Björnsson
  • Með linsuna að vopni, Skúli Ben hreindýraleiðsögumaður
  • Auðlendur, Fjölnir Torfason ferðaþjónustubóndi, Hala í Suðursveit
  • Auðlindin hreindýr, hagsmunasamtök um nýtingu hreindýra, Aðalsteinn Jónsson
  • Vinir Vatnajökuls, hollvinasamtök Vatnajökulsþjóðgarðs, Kristbjörg Hjartardóttir

14:30 - 14:45 Kaffihlé

14:45 - 15:30 Pallborðsumræður, stjórnandi Þorvarður Árnason Umhverfisfræðingur

Handverksfólk og hönnuðir sýna og selja afurðir sínar í miðrými Nýheima

16:00 - 18:00 Óvissuferð á hreindýraslóðir með meiru

19:30 Matur úr héraði, Hótel höfn kvöldverður úr matarkistu Austur og Suðausturlands
Óður til hreindýrsins, Charles Ross frumflytur tónlistaratriði

Tilkynna þarf þátttöku fyrir föstudaginn 26. mars, tilkynna þarf sérstaklega þátttöku í kvöldverð

Fundarstjóri er Rósa Björk Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Ríki Vatnajökuls, ferðaþjónustu, matvæla,- og menningarklasa Suðausturlands

Birt:
25. mars 2010
Tilvitnun:
Rósa Halldórsdóttir „Óður til hreindýrsins“, Náttúran.is: 25. mars 2010 URL: http://nature.is/d/2010/03/25/oour-til-hreindyrsins/ [Skoðað:9. júní 2026]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: