Oft er þörf en nú er nauðsyn - Nýting hráefnis og hrein framleiðslutækni
Ef einhvern tímann er mikil þörf að nýta hráefnið okkar betur og minnka um leið skaðlega áhrif á umhverfið okkar, þá er það nú á niðursveiflutímum.
Það færist í vöxt að fyrirtæki hér á landi taki upp gæðakerfi og umhverisstjórnunarkerfi, þar sem stór þáttur er að nýta vel hráefnið og skila afgöngum og restum flokkuðum til endurvinnslu og eyðingar. Flokkun úrgangs og endurnýting á hráefni er mikilvæg til að viðhalda hringrásinni. Einnig eru í slíkum umhverfiskerfum og gæðakerfum lagt rík áhersla að minnka orkunotkun svo sem en rafmagn-, olíu- og vatnsnotkun.
Þetta á við í öllum greinum atvinnulífsins og ekki er síst þörfin í sjávarútvegi þar sem við getum gert enn betur við að nýta hráefnið og vinna það með hreinni framleiðslutækni.
Það hafa verið tekin stór skref til framtíðar í lífrænni ræktun á íslandi og hreinni framleiðslutækni er valla til og vörur frá viðkomandi framleiðendum er í háum gæðaflokki og er bragðgóð vara.
Iðnaðurinn sem ofast byggir á innfluttu hráefni, getur enn aukið nýtingu hráefnis og skil til endurvinnslu og eyðingar. Þar geta fyrirtækin byrjað að stíga sín fyrstu skref með að taka upp ,,létt“ umhverfiskerfi. Fengið ráðgjafar- eða vottunarfyrirtæki til að taka með sér skref fyrir skref í að breyta framleiðslutækni og breyta strúktur fyrirtækisins í umhverfisvænni átt. Verslun, þjónustugreinar og annarskonar fyrirtækjarekstur er ekki undanskilin og allir geta tekið á umhverismálunum í sínum ranni.
Auðvitað eru íslensk fyrirtæki að reyna að nýta sitt hráefni vel, en betur getum við gert ef framleiðslan er keyrð eftir viðurkenndum gæða- eða umhveriskerfum, ekki síðst þar sem mikil starfsmannavelta er.Undirritaður hefur talsverða reynslu af Umhverfismerkinu Svaninum. Þar kom okkur mest á óvart að hvað slík vottun hafði víðtækari áhrif á rekstur lítils fyrirtækis, meira en okkur grunaði. Þar er kanski helst að slíkt kerfi er mikið gæðakerfi í leiðinni og er gott stýritæki í rekstrinu, ásamt því að nýting hráefnis jókst verulega. Sjá viðmið Svansins um prentverk.
Lþsandi dæmi um nýtingu hráefnis sem ég nefnt oft hér að ofan, er að kerfið hefur kennt okkur að nýta pappírinn betur og skila honum hreinni frá okkur til endurvinnslu. Frá því að við tókum upp Svaninn árið 2000 hefur pappírsúrkast minnkað um 7-9%. Það er há tala og ekki síðst þegar fyrirtæki eru að nota hundruðir tonna af hráefni.
Með því að hafa áhrif á hönnun, er möguleiki að efni sé betra nýtt og það á við í öllum atvinnugreinum að halda sig eins nálægt staðli og hægt er. Án þess að ég hafi þekkingu á hvernig þvi er háttað, þá ætti umhverismálin að vera stór þáttur í námi sem tengist almennri hönnun. Í okkar tilfelli er hráefnið pappír. Við notum í okkar framleiðslu um 80% umhverismerktum pappír, með Svansmerkinu, ásamt öðrum viðurkenndum merkjum eins og Evrópublóminu eða viðurkenndan pappír af Svansmerkinu. Sjá viðmið Svansins fyrir pappír.
Slíkur pappír kemur úr nytjaskógum sem eru endurplantaðir og pappírinn er unninn í pappírsmillum sem nota hreina framleiðslutækni. Það er því mikilvægt að pappír sé áfram unninn á hreinan og vel nýtanlegan hátt eða án skaðlegra efna eins og hægt er. Því er hann mjög gott afgangshráefni til endurvinnslu. Hringrásinni því náð án verulegrar fyrirhafnar.
Íslensk fyrirtæki eiga eftir að sigla inní erfiða tíma á næstu misserum. Því tel ég að huga þurfi að þessum málum sem ég nefni hér í fáum orðum, sem hefur fjárhagslegan og umhverfislegan ávinning í för með sér, og ímyndin fyrirtækjan vex enn frekar.
Höfundur pistils er prentsmiðjustjóri hjá umhverismerktu prentsmiðjunni Hjá GuðjónÓ sem er með Svaninn á sinni framleiðslu.
Sjá þá aðila sem hafa Svansvottun á Íslandi hér á Grænum síðum.
Birt:
Tilvitnun:
Ólafur Stolzenwald „Oft er þörf en nú er nauðsyn - Nýting hráefnis og hrein framleiðslutækni “, Náttúran.is: 8. janúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/01/08/oft-er-thorf-en-nu-er-nauosyn-nyting-hraefnis-og-h/ [Skoðað:9. júní 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

