Þann 23. júní 2008 kom út ný galdrabók sem heitir Tvær galdraskræður. Bókin er gefin út af Strandagaldri - Galdrasýningu á Ströndum. Bókin er bæði á íslensku og ensku þar sem íslenskan er prentuð á hægri síðu opnanna og á enska á þeirri vinstri. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um Tvær galdraskræður með því að smella hér.

Galdrabækur og galdrastafir eru ýmist álitin vitleysa og fáfræði eða forboðin fræði sem geyma leifar af fornum átrúnaði. Slík rit léku stórt hlutverk í íslenskum galdramálum. Í bókinni Tvær galdraskræður eru prentaðar tvær skræður eftir handritum frá því um 1800, einni öld eftir að hætt var að sækja menn til saka fyrir galdra. Myndir er tekin við opnun Kotbýlis kuklarans í Bjarnarfirði þ. 20. ágúst 2005. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
25. júní 2008
Höfundur:
Strandagaldur
Tilvitnun:
Strandagaldur „Tvær galdraskræður“, Náttúran.is: 25. júní 2008 URL: http://nature.is/d/2008/06/25/tvaer-galdraskraeour/ [Skoðað:9. júní 2026]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: