Ágætu hreppsnefndarmenn, þingmenn og ráðherrar!

Á stjórnarfundi Sjálfseignarstofnunarinnar Skaftholts þann 26. maí sl. var samþykkt eftirfarandi ályktun:

Í Skaftholti hefur verið unnið meðferðarstarf í 27 ár. Mikil uppbygging hefur átt sér stað. Einstaklingar sem búa í Skaftholti þurfa friðsælt umhverfi og mikilvægur þáttur í meðferðarstarfinu er róandi nærvera Þjórsár og hennar stórbrotna náttúra sem við megum ekki missa. Fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir, svo og vega- og brúargerð yfir Þjórsá við Þjórsárholt, munu stórskemma það frábæra umhverfi sem er hér í næsta nágrenni okkar.

Við teljum það nauðsynlegt fyrir starfið í Skaftholti að ekki verði af þessari virkjun, svo að þeir sem hér búa fái áfram að njóta þeirrar friðsældar og þess fagra og óspillta umhverfis sem hér er.

Skaftholt er lítið samfélag á landsbyggðinni sem býður upp á fjölbreytt og skemmtileg störf. Landsbyggðin þarf á fjölbreytni í atvinnulífi að halda og fyrirtækjum sem vaxa og dafna í fallegu og rólegu umhverfi.

Við skorum á ykkur að leyfa þessari starfsemi að fá að vera í friði.
Með þökk frá núverandi og komandi íbúum og aðstandendum Skaftholts.

Stjórn Sjálfseignarstofnunarinnar Skaftholt,
Aldís Hjaltadóttir
Guðjón Árnason
Halldór Kr. Júlíusson
Ragnheiður Haraldsdóttir
Sigfús Guðfinnsson

Myndin er af Skaftholti. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
5. júní 2007
Tilvitnun:
Stjórn Sjálfseignarstofnunarinnar Skaftholts „Ályktun vegna fyrirhugaðra virkjana við Þjórsá“, Náttúran.is: 5. júní 2007 URL: http://nature.is/d/2007/06/05/lyktun-vegna-fyrirhugara-virkjana-vi-jrs/ [Skoðað:9. júní 2026]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 6. júní 2007

Skilaboð: