Verður flug innan tíðar tengd kolefniskvóta?
Flugráð stendur fyrir kynningarfundi um áfangaskýrslu stýrihóps um losunarheimildir á koltvísýringi í flugi á Hótel Loftleiðum fimmtudag, 5. júní kl. 10:00.
Þar verður m.a. fjallað um:
Hver verður kostnaður flugrekstrar og farþega ef allt flug í Evrópu verður sett í kvótakerfi?
Getur Ísland fengið undaný águ frá slíku kerfi vegna sérstöðu sinnar?
Hvað losar íslenskt flug mikið af CO2 í samanburði við t.d. álverin?
Dagskrá:
- Ávarp: Kristján L. Möller, samgönguráðherra.
- Mikilvægi og afleiðingar útblásturskvóta í flugi: Gunnlaugur Stefánsson, formaður stýrihópsins.
- Stutt yfirlit um helstu atriði skýrslunnar: - Umhverfi og flugrekstur á vettvangi ESB: Högni Kristjánsson, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu.
- Losunarheimildir á koltvísýringi í flugi: Eiríkur Bjarnason, verkfræðingur, í samgönguráðuneytinu.
- Efnahagsleg áhrif útblásturskvóta á íslenskan flugrekstur og atvinnulíf: Sveinn Agnarsson, hagfræðingur hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands.
- Tæknileg og rekstraleg viðbrögð flugrekenda: Sveinn V. Ólafsson, verkfræðingur hjá Flugmálastjórn.
- Sérstaða Íslands og væntanleg viðbrögð: Jóhann Guðmundsson, skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu. - Umræður og fyrirspurnir
Allir velkomnir.
Birt:
4. júní 2008
Tilvitnun:
Flugráð „Verður flug innan tíðar tengd kolefniskvóta?“, Náttúran.is: 4. júní 2008 URL: http://nature.is/d/2008/06/03/verour-flug-innan-tioar-tengd-kolefniskvota/ [Skoðað:9. júní 2026]Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 3. júní 2008

