Ef einhvern tímann er mikil þörf að nýta hráefnið okkar betur og minnka um leið skaðlega áhrif á umhverfið okkar, þá er það nú á niðursveiflutímum.
Það færist í vöxt að fyrirtæki hér á landi taki upp gæðakerfi og umhverisstjórnunarkerfi, þar sem stór þáttur er að nýta vel hráefnið og skila afgöngum og restum flokkuðum til endurvinnslu og eyðingar. Flokkun ...
Efni frá höfundi
Oft er þörf en nú er nauðsyn - Nýting hráefnis og hrein framleiðslutækni 8.1.2009
Ef einhvern tímann er mikil þörf að nýta hráefnið okkar betur og minnka um leið skaðlega áhrif á umhverfið okkar, þá er það nú á niðursveiflutímum.
Það færist í vöxt að fyrirtæki hér á landi taki upp gæðakerfi og umhverisstjórnunarkerfi, þar sem stór þáttur er að nýta vel hráefnið og skila afgöngum og restum flokkuðum til endurvinnslu og eyðingar. Flokkun úrgangs og endurnýting á hráefni er mikilvæg til að viðhalda hringrásinni. Einnig eru í slíkum umhverfiskerfum og gæðakerfum lagt rík ...


Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur lagt fram skýrslu fyrir Alþingi um stöðu og stefnu í loftslagsmálum. Tilgangur skýrslunnar er að draga saman nýjustu og bestu upplýsingar um stöðuna í loftslagsmálum og að skapa umræðu um næstu skref í þeim efnum.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um umhverfismerki en hún gildir um norræna umhverfismerkið Svaninn, og umhverfismerki Evrópusambandsins Blómið. Reglugerðin kveður á um skilyrði fyrir veitingu þessara umhverfismerkja fyrir vörur og þjónustu.
Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir tveimur hótelbyggingum á verndarsvæði Mývatns. Skolphreinsun hótelanna er einnig án leyfis Umhverfisstofnunar. Þá er frárennsli hótels skammt frá vatnsbakka Mývatns bæði í ósamræmi við skilmála deiliskipulags og reglugerðir um hreinsun frárennslis við vatnið. Starfsmannahúsum var bætt við annað hótelið í haust án leyfis Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun veitti ekki leyfi fyrir vinnubúðum fyrir 50 manns við þriðja hótelið, sem nú er í byggingu. Landvernd freistar þess nú með röð stjórnsýslumála að fá tekið á málum sem varða lífríki Mývatns og allan almenning, í ljósi sívaxandi þunga ferðamannastaums og aukins álags á verndarsvæðin í landinu. Mývatn ver sig ekki sjálft.
Aðalfundur Umhverfisvaktarinnar við Hvalfjörð 2017 verður haldinn sunnudaginn 12. febrúar 2017 kl 17:00 í Garðakaffi, Görðum á Akranesi.
Málþing og vinnustofur í Norræna húsinu 2. febrúar 2017
Í gær lýsti forsætisráðherra Íslendinga því yfir í fyrsta sinn, kvitt og klárt, í stefnuræðu sinni að: