Laugardaginn 15. ágúst 2009 munu netverslanirnar ISbambus, Kindaknús, Krútt, Montrassar, Perlur, Snilldarbörn, Tamezonline og Þumalína halda sameiginlegan taubleiumarkað þar sem mikið úrval taubleia verður til sölu og sýnis á einum stað.

Taubleiumarkaðurinn verður haldin á neðri hæð verslunarinnar Maður Lifandi við Borgartúni 28, 105 Reykjavík, kl. 11:00 - 17:00.

Notkun taubleia er góð fyrir umhverfið segir í fréttatilkynningu um markaðinnn auk þess að spara heimilum töluverð útgjöld. Því hafa taubleiur notið aukinna vinsælda hér á landi.
Hvert barn notar, að meðaltali, um 6.000 bréfbleiur á bleiutímabilinu. Þetta gerir u.þ.b. tvö tonn af sorpi á hvert barn, sem mun svo taka um 500 ár að eyðast í náttúrunni. Hægt er að koma í veg fyrir þessa uppsöfnun bréfbleia með tilheyrandi kostnaði og umhverfismengun með því að nota taubleiur.
Birt:
9. ágúst 2009
Uppruni:
Þumalína
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Taubleiumarkaður í Manni lifandi“, Náttúran.is: 9. ágúst 2009 URL: http://nature.is/d/2009/08/09/taumbleiumarkaour-i-manni-lifandi/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: