Náttúran.is hefur nú annað árið í röð látið merkja sér EarthPositive™ stuttermaboli en við fyrstu innkaup hér á Nátttúrumarkaði yfir 7.000 IKR netto fylgir bolur með sem gjöf. Bolirnir eru til í mismunandi stærðum og þremur litum, bæði fyrir dömur og herra. Einnig er hægt að kaupa bolina staka. Sjá gjafavörudeildina.

Hvað er EarthPositive?
EarthPositive™ er byltingarkennd græn markaðssetning á fatalínu fyrir auglýsingaiðnaðinn en BROS er nú að hefja innflutning á línunni Climate Neutral T-shirts (lofslagsvænir stuttermabolir) en þeir eru lífræn- og sanngirnisvottuð framleiðsla (6 vottanir) sem framleidd er eingöngu með sjálfbærri vind- og sólarorku þar sem allt ferlið er grandskoðað með tilliti til umhverfisáhrifa frá ræktun til afhendingar til viðksiptavinarins. The Carbon Trust hefur þróað fyrstu líftíma- kolefnislosunarvottun CO2 vottunina sem sýnir kolefnislosun sem hver einstök vara er ábyrg fyrir. Vottunin er einstök á heimsvísu en stuttermabolir Náttúrunnar frá EarthPositve eru einmitt vottaðir af Carbon Trust. Sjá nánar um Carbon label.

Heildarlosun v. framleiðslu og flutning EarthPositive stuttermabolar er:
Dömubolur 576g, herrabolur 671g.

Náttúrubolirnir eru til áprentaðir með hvítu merki Náttúrunnar í takmörkuðu upplagi og gildir tilboð þetta á meðan birgðir endast. Óskir þú eftir að fá Náttúrubol eða Náttúruspil skrifar þú okkur á nature@nature.is og ef bolur verður fyrir valindu tekur þú fram hvaða stærð og  hvaða lit þú óskar eftir.

Sjá svartan Náttúru stuttermabol fyrir herra - M.
Sjá svartan Náttúru stuttermabol fyrir dömur - M.
Sjá dökkbláan Náttúru stuttermabol fyrir dömur - S.
Sjá rauðan Náttúru stuttermabol fyrir dömur - S.

Birt:
31. júlí 2009
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Loftslagsvænir og lífrænir Náttúrubolir“, Náttúran.is: 31. júlí 2009 URL: http://nature.is/d/2009/06/11/nyir-lofslagsvaenir-natturubolir-komnir/ [Skoðað:19. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 11. júní 2009
breytt: 13. nóvember 2011

Skilaboð: