Aðalfundur Félags umhverfisfræðinga á Íslandi 2008 lýsir áhyggjum vegna umræðu um að draga eigi úr kröfum er lúta að auðlindanýtingu og mati á umhverfisáhrifum framkvæmda. Félagið hvetur til þess að hugað verði að langtímahagsmunum okkar og komandi kynslóða þegar kemur að ákvarðanatöku sem varðar náttúru okkar, umhverfi og auðlindir.

Til að renna sterkari stoðum undir efnahagslíf á Íslandi í kjölfar þeirrar fjármálakreppu sem hér ríkir, hafa heyrst raddir um að auka skuli og hraða ásókn í helstu náttúruauðlindir okkar, óháð faglegu mati og leiðbeiningum vísindamanna. Slíkt getur leitt til alvarlegra og jafnvel óafturkræfra áhrifa á náttúruauðlindir okkar og þar með stefnt í hættu nýtingarmöguleikum okkar til framtíðar, auk þess að skaða ímynd Íslands á alþjóðavettvangi. Til lengri og skemmri tíma litið má ekki draga úr kröfum, enda getur slíkt stangast á við lög og alþjóðlegar skuldbindingar Íslendinga.

Mikilvægt er að inn í framtíðarsýn okkar fléttist hugmyndafræði um sjálfbæra nýtingu og þróun samfélagsins, þannig að saman fari umhverfisvernd, félagsleg þróun og efnahagslegur vöxtur. Ekki má skerða rétt komandi kynslóða til að njóta þeirra auðlinda, náttúrulegra og menningarlegra, sem velmegun okkar hefur grundvallast á hingað til. Um Félag umhverfisfræðinga á Íslandi:
Félag umhverfisfræðinga á Íslandi er fagfélag háskólamenntaðra umhverfis- og auðlindafræðinga. Félagið beitir sér fyrir faglegri umræðu um umhverfismál og leggur sig fram um að miðla vísindalegri þekkingu og reynslu af umhverfismálum til samfélagsins.
Birt:
21. október 2008
Tilvitnun:
Félag umhverfisfræðinga „Varað við áhlaupi á náttúruauðlindirnar nú“, Náttúran.is: 21. október 2008 URL: http://nature.is/d/2008/10/21/varuo-skal-hofo-gagnvart-natturunni/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: