Umhverfisfræðsluráð og Landvernd boða til málþings um þjóðaráætlun um menntun til sjálfbærni. Málþingið fer fram á Grand Hótel þriðjudaginn 15. september kl. 13:00 til 16:00. Þátttaka tilkynnist með tölvupósti á postur@umhverfisraduneyti.is. Aðgangur er ókeypis.

Dagskrá málþingsins:

  • Ávarp Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra.
  • Niðurstöður úttektar á menntun til sjálfbærni á Íslandi sem unnin er fyrir umhverfisfræðsluráð. Stefán Gíslason, Environice.
  • Umhverfislæsi – getum við lært af öðrum þjóðum? Andrés Arnalds, Landgræðslunni.
  • Kaffi.
  • Þjóðaráætlun um menntun til sjálfbærni – hvað þarf til? Mike Littledyke og Rose Littledyke.
  • Endurskoðun aðalnámskrár með sjálfbæra þróun í huga. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra.
  • Pallborð og umræður.

Mike og Ros Littledyke starfa bæði við Menntavísindasvið University of New England í Ástralíu. Sérsvið þeirra er menntun til sjálfbærni og þau hafa fjallað mikið um leiðir til að auka umhverfisvitund nemenda á öllum skólastigum. Í fyrirlestri sínum munu þau m.a. kynna metnaðarfulla framkvæmdaáætlun Ástralíu (apríl 2009) um leiðir til að öll þjóðin lifi í sátt við umhverfið.

Hlutverk umhverfisfræðsluráðs er að stuðla að aukinni fræðslu um umhverfismál og sjálfbæra þróun til almennings og skóla. Samkvæmt ákvæði í framkvæmdaáætlun um sjálfbæra þróun í íslensku samfélagi er hlutverk ráðsins að hvetja til aðgerða, koma á samvinnu, samræma og stuðla að aukinni umhverfismennt í samvinnu við sveitarfélög, samtök áhugamanna um umhverfismál, samtök almennings, aðila vinnumarkaðarins og stofnanir. Eftirtaldir aðilar tilnefna fulltrúa í ráðið: Menntamálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Námsgagnastofnun, Kennaraháskóli Íslands, Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands, Neytendasamtökin og félagasamtök á sviði umhverfismála tilnefna einn sameiginlegan fulltrúa.

Birt:
29. ágúst 2009
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Málþing um þjóðaráætlun um menntun til sjálfbærni“, Náttúran.is: 29. ágúst 2009 URL: http://nature.is/d/2009/08/28/malthing-um-thjooaraaetlun-um-menntun-til-sjalfbae/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 28. ágúst 2009
breytt: 14. september 2009

Skilaboð: