Á fréttavef Víkurfrétta segir frá því að bæjarfulltrúar H-listans í Vogum vilji að fram fari íbúakosning um nýjar raflínur í landi sveitarfélagsins og telur að bæjarstjórn sé bundin af skýrum vilja sem fram kom á íbúafundi síðasta sumar þar sem samþykkt var að leggja allar nýjar raflínur innan marka sveitarfélagsins í jörð. Þetta kemur fram í bókun H-listans frá síðasta bæjarstjórnarfundi.

Bókunin er svohljóðandi: „Við teljum að bæjarstjórn sé bundin af skýrum vilja íbúafundar frá 20. júní 2007 þar sem samþykkt var að leggja allar nýjar raflínur í landi sveitarfélagsins í jörð. Ef nýjar upplýsingar hafa komið fram sem breytt gætu afstöðu bæjarbúa förum við fram á að íbúar sveitarfélagsins greiði atkvæði um málið í íbúakosningu að afstaðinni ítarlegri kynningu þar sem meðrök og mótrök eru lögð á borðið. Þrátt fyrir að afstaða bæjarfulltrúa H- listans sé að slíkar línur skuli skilyrðislaust fara í jörð lþsum við okkur reiðubúin til að nýta skipulagsvaldið til að fara að vilja meirihluta íbúa sveitarfélagsins í málinu, hver sem hann kann að vera.“ Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
7. júlí 2008
Höfundur:
Víkurfréttir
Tilvitnun:
Víkurfréttir „Vilja íbúakosningu um háspennulínur“, Náttúran.is: 7. júlí 2008 URL: http://nature.is/d/2008/07/07/vilja-ibuakosningu-um-haspennulinur/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: