Rafmagnstækjum fjölgar sífellt á heimilum landsins. Um 10% raforkunotkunar heimilistækja fer oft á tíðum í svokallaða biðstöðu eða „Stand by" notkun. Hafa ber í huga að í biðstöðu eyða rafmagnstæki orku án notkunar. Tæki í biðstöðu skila engu til notenda nema hærri rafmagnsreikningi. Biðstaða tækja er oft kölluð rafmagnsleki enda seytlar hægt og bítandi út raforka engum til gagns. Auðveldasta leiðin til að minnka biðstöðunotkun er að slökkva alveg á tækjum og helst að taka úr sambandi.

Birt:
18. apríl 2010
Höfundur:
Orkusetur
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Orkusetur „Orka - Rafmagnstæki“, Náttúran.is: 18. apríl 2010 URL: http://nature.is/d/2007/05/16/orka-rafmagnstki/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 16. maí 2007
breytt: 21. maí 2014

Skilaboð: