Í kjölfar tillögu Kolbrúnar Halldórsdóttur umhverfisráðherra sem samþykkt var í ríkisstjórn um að framkvæmdum við ofanflóðavarnir verði hraðað, hefur ofanflóðanefnd óskað eftir heimild fjármálaráðuneytisins til að bjóða út famkvæmdir við varnargarða í Neskaupstað og í Ólafsfirði. Umhverfisráðherra lagði til við ríkisstjórn að tæpum 1.100 milljónum króna yrði varið í ofanflóðavarnir til viðbótar við þær tæpar 700 milljónir sem ákveðið var að veita í málaflokkinn samkvæmt fjárlögum.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir standi yfir næstu fjögur árin í Neskaupstað en ljúki að mestu á þessu ári í Ólafsfirði. Ætla má að framkvæmdirnar í Neskaupstað og Ólafsfirði muni skapa hátt í 200 ársverk.

Nú er unnið að útboði vegna upptakastoðvirkja í Neskaupstað. Tilboði í hönnun og smíði þeirra hefur þegar verið tekið en uppsetning verður boðin út á næstunni.

Íbúafundir voru haldnir í Ólafsfirði og í Neskaupstað í liðinni viku þar sem fyrirhugaðar framkvæmdir voru kynntar af Hafsteini Pálssyni, verkefnastjóra ofanflóðanefndar og hönnuðum framkvæmdanna. Þar gafst íbúum sveitarfélaganna einnig kostur á að fá svör við spurningum um fyrirhugaðar framkvæmdir.

Ofanflóðanefnd hefur með samþykkt ríkisstjórnarinnar jafnframt fengið heimild til að vinna að auknum framkvæmdum í Bolungarvík á árinu og til að hefja framkvæmdir við næsta áfanga snjóflóðavarna á Ísafirði. Áætlað er að 30 ný ársverk skapist í tengslum við þessar auknu framkvæmdir.

Þess má geta að nú er unnið að framkvæmdum við ofanflóðavarnir í Ólafsvík og Bíldudal auk fyrrgreindra framkvæmda í Bolungarvík. Miðað er við að ljúka framkvæmdum í Ólafsvík og Bíldudal að mestu leyti á árinu. Mynd: Frá íbúafundi í Neskaupstað. Umhverfisráðuneytið.
Birt:
6. apríl 2009
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Framkvæmdum hraðað við ofanflóðavarnir“, Náttúran.is: 6. apríl 2009 URL: http://nature.is/d/2009/04/06/framkvaemdum-hraoao-vio-ofanflooavarnir/ [Skoðað:16. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: