Kvikmyndasýningar
Fimmtudagana 4. og 11. september kl 12:15
The story of stuff eftir Annie Leonard

Framtíðarlandið
5. september kl 15:00
Kynning á samtökunum og hvað er á döfinni

Náttúran.is kemur Íslandi á græna kortið
6. september kl 15:00
Náttúran.is kynnir græna Íslandskortið

Græna Íslandskortið byggist á kortlagningu vistænna kosta í viðskiptum og ferðamennsku á Íslandi. Tilgangur kortsins er að gefa yfirsýn yfir þá fjölmörgu umhverfisvænu kosti sem fyrir eru í landinu og hvetja fjólk til að nýta sér þá og styðja frekar þau fyrirtæki sem vinna á umhverfismeðvitaðan hátt. Grunnskráning er ókeypis á græna Íslandskortið!

Landvernd
10. september kl 15:00
Landvernd fjallar um starfsemi sína kynnir meðal annars Kolvið,  Vistvernd í verki og vistaksturshermi

Samfélagslegur ávinningur af vistakstri er mikill og margþættur og má t.d. nefna minni mengun, lægri slysatíðni, minni innflutning á eldsneyti og bætta umferðarmenningu. Mælingar sýna að eyðsla og útblástur þeirra sem tileinka sér vistakstur minnkar um 5-10% en út frá því má áætla að eftir 12 mánuði muni útblástur minnka um sem nemur u.þ.b. 3.000 tonnum á ári.
Birt:
28. ágúst 2008
Höfundur:
Stefán Gíslason
Uppruni:
Norræna húsið
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Umhverfisdagar í Norræna Húsinu“, Náttúran.is: 28. ágúst 2008 URL: http://nature.is/d/2008/08/28/umhverfisdagar-i-norraena-husinu/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: