Nátturan.is hefur nú fengið þær góðu fréttir að fyrirtækið Náttúran er ehf. sem stendur að vefnum fái framlag úr fjárlögum 2008 frá Alþingi Íslendinga. Við erum óumræðinlega þakklát fyrir þá viðurkenningu sem felst í úthlutuninni og lítum björtum augum til framtíðarinnar og þess að vefurinn verði enn öflugra tæki til þess að sem flestir geri umhverfisvitund að ábyrgum lífsstíl sínum.

Náttúran.is stundar eins og lesendum og skoðendum hennar er kunnugt, öfluga umhverfisfræðslu með þróun og framleiðslu eigin efnis sem og birtir hún efni í samvinnu við fjölda aðila s.s. náttúruverndarsamtök, einstaklinga, vottunaraðila, stofnanir sem hafa með umhverfi og náttúru að gera og fyrirtæki sem stunda á einhvern hátt náttúruleg og umhverfisvæn viðskipti.

Takmarkið er að Náttúran.is geti svarað öllum þeim umhverfis- og heilsutengdu spurningum sem vakna í dagsins önn. Ákvarðanir okkar neytenda eru meginforsenda þess að umhverfisvæn viðskipti fái byr undir báða vængi og að því vill Náttúran.is stuðla með því að setja efni fram á aðgengilegan og myndrænan hátt.

Birt:
20. desember 2007
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Náttúran.is fær framlag á fjárlögum“, Náttúran.is: 20. desember 2007 URL: http://nature.is/d/2007/12/20/natturan-faer-framlag-ur-fjarlogum/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 22. desember 2007

Skilaboð: