Rjúpnaveiðitíminn hófst í dag. Rjúpnaveiðitímabilið stendur frá 1.-30. nóvember í ár. Mælt er með því að veiddir verði að hámarki 38.000 fuglar. Vakin skal athygli á að veiðar eru aðeins leyfðar á fimmtudögum, föstudögum, laugardögum og sunnudögum.

Allar skotveiðar eru bannaðar innan þjóðgarða og á 2.700 ferkílómetrum á Suðvesturlandi. Sjá nánar í grein um ákvarðanir umhverfisráðherra varðandi rjúpnaveiðar.

Umhverfisstofnun hvetur rjúpnaveiðimenn til að kynna sér vandlega reglur um þjóðgarða og friðlýst svæði áður en haldið er til veiða. Sjá vef ust.is.

Í dag kl. var 08:21 kom fyrsta útkall haustsins vegna rjúpnaveiðimanna, aðeins rúmum 8 stundum eftir að rjúpnaveiðitímabilið hófst.. Það voru veiðimenn á Landcrusier jeppa sem sátu fastir í miðri á fyrir norðan Sandkluftarvatn. Mennirnir höfðu bjargað sér í land og amaði ekkert að þeim. Björgunarsveitin Ingunn fór á staðinn kom þeim til hjálpar tæpum klukkutíma síðar. Mikill straumur er af veiðimönnum núna uppá hálendið á þessum slóðum. Bjsv. Ingunn hefur undanfarna daga verið að undirbúa sig fyrir rjúpnaveiðitímabilið og á von á því að þurfa að sinna þónokkrum útköllum tengdum rjúpnaveiði eins og undanfarin ár.

Ljósmynd: Jóhann Óli Hilmarsson. 

Birt:
1. nóvember 2007
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Rjúpnaveiðitíminn hafinn“, Náttúran.is: 1. nóvember 2007 URL: http://nature.is/d/2007/11/01/rjpnaveiitminn-hafinn/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: