Plöntur eru ýmist villtar eða framleiddar, þ.e. komið á legg með sáningu fræja eða gróðursetningu t.a.m. stiklinga. Þær jurtir sem eru á boðstólum hérlendis eru ýmist fluttar inn eða framleiddar hérlendis. Eftirlit með innflutningi fræja, lifandi jurta, afskorinna blóma og áburðar er á höndum Matvælastofnunar. Hlutverk stofnunarinnar er að hindra að sjúkdómar eða meindýr sem berist til landsins gætu valdið tjóni á innlendri plönturæktun. Lífræn fræ og lífrænt ræktaðar plöntur er nú hægt að fá frá mörgum framleiðendum og eftirspurnin eykst stöðugt. Lífræn ræktun byggist á því að ekki eru notuð lyf og varnarefni í jarðveginn og einungis er notaður lífrænn áburður. Umhverfisáhrif slíkrar framleiðslu eru miklum mun jákvæðari en við hefðbundna ræktun. Vottunarstofan Tún er meðlimur í IFOAM og sér um að taka út lífræna vottun á landsvæðum og ræktun hér á landi. 

Grafik: Plöntudeild Náttúrumarkaðarins, Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran.is.

Birt:
6. febrúar 2014
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir, Ingibjörg Elsa Björnsdóttir „Plöntur og fræ á Náttúrumarkaði“, Náttúran.is: 6. febrúar 2014 URL: http://nature.is/d/2008/03/31/plontur-frae-og-garovorudeild-natturumarkaoi/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 31. mars 2008
breytt: 28. mars 2014

Skilaboð: