Félag umhverfisfræðinga á Íslandi stendur fyrir málþingi undir yfirskrftinni „Ferðaþjónusta, náttúra og samfélag - Sjálfbærni á tímamótum“  fimmtudaginn 12. mars 2009, kl. 13:00-17:00 í aðalhúsnæði Háskólans á Akureyri, Sólborg, sal L201,

Búist er við auknum fjölda innlendra og erlendra ferðamanna á Íslandi á komandi misserum. Tryggja þarf að fjölgun ferðamanna hafi ekki í för neikvæð áhrif á náttúru Íslands og einstök byggðarlög. Þekking á þolmörkum náttúru og samfélags og hvernig þróa má ferðaþjónustu í átt að sjálfbærni eru lykilatriði í þessu sambandi. Málþingið Ferðaþjónusta, náttúra og samfélag er númer tvö í röð málþinga sem Félag umhverfisfræðinga á Íslandi stendur fyrir undir yfirskriftinni Sjálfbærni á tímabótum. Sjónum verður beint að tilurð, mótun og sérstöðu íslenskrar ferðaþjónustu, vexti hennar, stöðu og þolmörkum og rætt um tengsl og upplifun fólks af náttúrunni. Þá verður fjallað um vöruþróun og stefnumótun á grunni sjálfbærni og rætt sérstaklega um sjálfbæra ferðaþjónustu á Norðurlandi.

Dagskrá málþingsins:

  • Setning - Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður Félags umhverfisfræðinga á Íslandi
  • Ferðaþjónusta á tímamótum? Tilurð ferðaþjónustu á Íslandi og sjálfbærni - Gunnar Þór Jóhannesson, ný doktor, Mannfræðistofnun, Háskóla Íslands
  • Ferðaþjónustan í dag og líkleg þróun - Elías Gíslason, forstöðumaður upplýsinga- og þróunarsviðs Ferðamálastofu
  • Þolmörk náttúru og samfélags í ferðaþjónustu - Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent í ferðamálafræðum, Háskóla Íslands
  • Upplifun og tengsl fólks við náttúruna - Jakob Frímann Þorsteinsson, aðjúnkt við Menntavísindasvið HÍ og stundakennari við Hólaskóla
Kaffihlé
  • Vöruþróun í ferðaþjónustu á grunni sjálfbærni - mikilvægi samræmdrar svæðisbundinnar stefnumótunar - Edward H. Huijbens, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála
  • Sjálfbær ferðaþjónusta á Norðurlandi - Ásbjörn Björgvinsson, framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi
Umræður

Fundarstjóri er Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Allir velkomnir!
Birt:
4. mars 2009
Tilvitnun:
Félag umhverfisfræðinga „Ferðaþjónusta, náttúra og samfélag“, Náttúran.is: 4. mars 2009 URL: http://nature.is/d/2009/03/03/feroathjonusta-nattura-og-samfelag/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 3. mars 2009
breytt: 4. mars 2009

Skilaboð: