Hrafnaþingi á Hlemmi - opin fræðsluerini Náttúrufræðistofnunar. Erindi eru flutt að jafnaði annan hvern miðvikudag og eru haldin í sal Möguleikhússins á Hlemmi, Reykjavík. Þau hefjast kl. 12:15 og er lokið kl. 13:00. Næsta erindi Hrafnaþings, verður miðvikudaginn 20. febrúar og nefnist „Birkifrjókorn - Má lesa sögu erfðablöndunar ilmbjarkar og fjalldrapa úr jarðvegi?“

Llilja Karlsdóttir líffræðingur á Líffræðistofnun Háskóla Íslands, flytur erindi um rannsóknir á frjókornum ilmbjarkar og fjalldrapa. Mikil vinna hefur verið lögð í að aðgreina frjókorn birkitegunda vegna mikilvægis þeirra í gróðurfarssögu Íslands. Lilja mun segja frá tveimur aðskildum rannsóknum á íslenskum birkifrjókornum í erindi sínu.

Í þeirri fyrri voru frjókorn tekin af þekktum trjám eða runnum í tíu skóglendum víðsvegar á landinu. Trén höfðu áður verið greind til tegundar með talningu litninga í ungu laufi. Litningatalningin flokkaði plönturnar í þrjá hópa: Fjalldrapa með 28 litninga, ilmbjörk með 56 litninga og blendinga með 42 litninga. Útlit trjánna var breytilegt og ekki alltaf mögulegt að sjá fyrir litningaflokk hvers einstaklings. Niðurstöðurnar sýndu að frjókorn fjalldrapa og blendinga voru að meðaltali minni en frjókorn ilmbjarkar. Þessi munur var marktækur en þó minni en eldri rannsóknir hafa sýnt, en mikil vinna hefur áður verið lögð í að aðgreina frjókorn birkitegunda vegna mikilvægis þeirra í gróðurfarssögu.

Meðal frjókorna frá þrílitna blendingum var mjög mikið um afbrigðileg korn. Ef þessi korn sjást í sýnum úr setlögum og mó verður því mögulegt að nota þau til þess að greina tímabil erfðablöndunar í gróðurfarssögu.
Þar sem rannsóknum er ekki lokið og niðurstöður eru enn óbirtar, verður fyrirlesturinn ekki tekinn upp á myndband og birtur á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar.

Sjá nánari umfjöllun um erindi Lilju er á heimasíðu Náttúrfræðistofnunar.

Sjá dagskrá Hrafnaþings í vetur.

Efsta mynd t.h. er af birki [Betula pubeskens] í maí og sú í miðið t.v. er af fjalldrapa [Betula nana] í júlí. Ljósmyndir: Guðrún Tryggvadóttir.
Neðsta myndin er smásjármynd af frjókornum, mynd: Lilja Karlsdóttir.

Birt:
18. febrúar 2008
Tilvitnun:
Náttúrufræðistofnun Íslands „Birkifrjókorn - Má lesa sögu erfðablöndunar ilmbjarkar og fjalldrapa úr jarðvegi?“, Náttúran.is: 18. febrúar 2008 URL: http://nature.is/d/2008/02/18/birkifrjokorn-ma-lesa-sogu-erfoablondunar-ilmbjark/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 19. febrúar 2008

Skilaboð: