Samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 eru eftirfarandi plöntutegundir friðlýstar þar sem þær vaxa villtar. Lagt er bann við að slíta af þeim sprota, blöð, blóm eða rætur, traðka á þeim, grafa þær upp eða skerða á annan hátt.

  • Blóðmura [Potentilla erecta]
  • Burstajafni [Lycopodium clavatum]
  • Davíðslykill [Primula egaliksensis]
  • Dvergtungljurt [Botrychium simplex]
  • Eggtvíblaðka [Listera ovata]
  • Ferlaufungur [Paris quadrifolia]
  • Fitjasef [Juncus gerardii]
  • Flæðarbúi [Spergularia salina]
  • Glitrós [Rosa dumalis]
  • Heiðarstör [Carex heleonastes]
  • Hlíðaburkni [Cryptogramma cripa]
  • Hreistursteinbrjótur [Saxifraga foliolosa]
  • Hveraugnfró [Euphrasia calida]
  • Klettaburkni [Asplenium viride]
  • Knjápuntur [Sieglingia decumbens]
  • Línarfi [Stellaria calycantha]
  • Lyngbúi [Ajuga pyramidalis]
  • Melasól (með hvítum og bleikum blómum) [Papaver radicatum ssp. Stefansonii]
  • Mosaburkni [Hymenophyllum wilsonii]
  • Mýramaðra [Galium palustre]
  • Skeggburkni [Aspleniums septentrionale]
  • Skollakambur, jarðhitaafbrigði [Blenchnum spicant var. fallax]
  • Skógfjóla [Viola riviniana]
  • Súrsmæra [Oxalis acetosella]
  • Svartburkni [Asplenium trichomanes]
  • Tjarnblaðka [Persicaria amphibia]
  • Tjarnabrúða [Callitriche brutia]
  • Trjónustör [Carex flava]
  • Vatnsögn [Crassula aquatica]
  • Villilaukur [Allium oleraceum]
Birt:
10. apríl 2007
Tilvitnun:
Erlingur Filippusson „Nýting villigróðurs - Friðaðar plöntutegundir“, Náttúran.is: 10. apríl 2007 URL: http://nature.is/d/2007/04/10/nting-villigrurs-friar-plntutegundir/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 28. maí 2010

Skilaboð: