Viltu verða orkubóndi og framleiða þína eigin orku? Allir geta orðið orkubændur!

Orkubóndinn er fyrir áhugafólk um virkjun orku, einstaklinga, fyrirtæki, landeigendur og bændur sem hafa hug á að beisla orkuna heima fyrir. Í landinu okkar er ógrynni af endurnýtanlegri orku sem fellur til og hægt er að nýta. Á námskeiðinu verður farið yfir verkfræðileg viðfangsefni á mannamáli og fjallað um leiðir til að virkja læki eða ár, jarðhita, vindorku, sólarorku eða annars konar orku. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru sérfræðingar frá Nýsköpunarmiðstöð, Orkustofnun og færustu verkfræðistofum landsins á sviði orku.  Í kjölfar námskeiðsins fá þátttakendur aðstoð við að hrinda virkjunarhugmyndum í framkvæmd.

Orkubóndinn er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Sveitarfélagsins Árborgar, Mannvits, Orkustofnunar, Iðnaðarráðuneytisins og Verkís.

Suðurland
Námskeiðið verður haldið að Menningarverstöðinni Hólmaröst, Hafnargötu 9, 825 Stokkseyri dagana 6. og 7. október frá kl 10:00 - 16:30 báða dagana. Námskeiðsgjald er 3.000 krónur.  Innifalið í námskeiðsgjaldi er hádegisverður og kaffi.

Dagskráin 6. október:

10:00 Skráning
10:15 Skipulag námskeiðsins
10:20 Endurnýjanlegar orkulindir og aðgengi þeirra á Ísland. Þorsteinn Ingi Sigfússon
11:00 Orkulindir sem eru lengra undan í tíma. Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
12:00 Hádegisverður
12:30  Virkjun vatnsfalla. Sérfræðingar verkfræðistofanna
13:30  Virkjun jarðhita. Sérfræðingar verkfræðistofanna
14:30  Gerð eigin eldsneytis. Sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
15:15  Reglugerðir og umhverfismál. Sérfræðingur Orkustofnunar
15:45  Tillögum og hugmyndum fundarmanna safnað saman. Undirbúningsvinna fyrir seinni dag
16:30  Lok fyrri dags

Dagskráin 7. október:

10:00  Skipulagning
10:30  Fundarmenn leggja fram hugmyndir sínar
11:30  Fundarmenn skipta sér í hópa eftir áhugamálum og viðfangsefnum
12:30  Hádegisverður
13:00  Vinna í hópum
15:30  Samantekt vinnuhópa – staða hugsanlegra verkefna og umræður  um framhald þeirra. Afhending          viðurkenningarskjala
16:30  Fundarlok

Í vetur verða haldin sams konar námskeið fyrir aðra landshluta, sem auglýst verða síðar.
19. maí verður ráðstefna haldin í Reykjavík þar sem þátttakendur af námskeiðunum koma saman ásamt  fagaðilum úr orkugeiranum.  Iðnaðarráðherra mun þar veita hvatningarverðlaunin Orkubóndinn.

Nánari upplýsingar gefa:   K. Brynja Sigurðardóttir,  Brynjasig@nmi.is eða í síma  522 9000, Katrín Georgsdóttir, kg@arborg.is eða í síma 480 1927, Steingerður Hreinsdóttir, steingerdur@sudur.is eða í síma  480 8212

Skráning á Orkubóndann.

Orkubóndinn er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Sveitarfélagsins Árborgar, Mannvit, Orkustofnunar, Iðnaðarráðuneytisins og Verkís.

Birt:
30. september 2009
Tilvitnun:
Nýsköpunarmiðstöð Íslands „Viltu verða orkubóndi? “, Náttúran.is: 30. september 2009 URL: http://nature.is/d/2009/09/30/viltu-veroa-orkubondi/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: