Grænt Íslandskort er samvinnuverkefni Náttúran.is, fjölþjóðlega verkefnisins Green Map® System og Land- og ferðamálafræðistofu Háskóla Íslands. Grænu kortin okkar byggja á flokkunarkerfi Green Map® kerfisins og gagnagrunni Grænna síðna™ Náttúrunnar sem er árangur níu ára rannsóknarvinnu á vistvænum kostum í viðskiptum og ferðamennsku á Íslandi.

Græna kortið er á; íslensku, ensku, þýsku, ítölsku og frönsku, og tengist hinu gríðarlega magni af umhverfisupplýsingum og vottunartengingum sem fyrir hendi á vefnum Náttúran.is. Grænt Reykjavíkurkort í prentútgáfu var fyrst gefið út haustið 2010 og aftur sumarið 2011. Haustið 2012 var síðan gefið út Lífrænt Íslandskort í prentútgáfu og haustið 2013 kom Grænt kort/Green Map IS með Íslandi á einni hliðinni og Reykjavík á hinni út í prentútgáfu. Samnefnt app fyrir snjallsíma og spjaldtölvur fer í dreifingu innan tíðar.

Öllum er frjálst að fá skráningu á Græna kortið svo framarlega sem að starfsemin byggist á viðurkenndum vottunum eða aðferðafræði enda ekki ætlunin að grænþvo neinn sem ekki uppfyllir þau skilyrði sem sett eru við kortagerðina.

Tilgangur Grænna korta er að gefa yfirsýn yfir þá fjölmörgu umhverfisvænu kosti sem fyrir eru í landinu og hvetja fjólk til að nýta sér þá og styðja frekar þau fyrirtæki sem vinna á umhverfismeðvitaðan hátt.

Hefur þú skoðað Græna Íslandskortið?

Birt:
26. júní 2007
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Grænt Íslandskort“, Náttúran.is: 26. júní 2007 URL: http://nature.is/d/2007/06/26/Isand/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 21. maí 2014

Skilaboð: