Berjauppskeran hefur verið með ólíkindum í ár, alls staðar á landinu. Bláber vaxa í meira magni en elstu menn muna í Grímsnesinu. Stutt heimsókn í sumarbústað foreldra minna og í mesta lagi 10 mínútna tínsla næstum fylltu kökuboxið mitt. Það þarf ekki að eyða tíma í að leita. Bláber á tveim þúfum nægðu til og því greinilega enga líkamsrækt að fá út úr berjatínslu lengur.

Nokkrar góðar uppskriftir voru reifaðar meðal sumarhúsagesta og hér koma þær.

Hrábláberjasulta
500 g hrásykur
1 kg bláber
Hrásykrinum er stráð yfir berin í skál og látin liggja í smátíma, hrært varlega í af og til þangað til að sykurinn hefur sogað til sína nóg af safanum í berjunum til að útlitið sé sultulegt. Tilbúið!

Engin suða, ekkert vesen! Hráberjasultan geymist ekki eins lengi og soðin og í sótthreinsaðar krukkur lögð sulta en ef ekki á að sulta fyrir allan veturinn heldur gleðjast yfir ferskri uppskeru í nokkra daga, dugir þessi uppskrift vel til.

Frosin ber
Bláber (eða hvaða ber sem er) eru lögð í plastglas, vatni hellt yfir svo yfir fljóti. Lokað með plastfólíu og sett í frysti. Þannig geymast berin „fersk“ langt fram á næsta ár.

Sæt ber allt árið
Bláberjum (eða hvaða berjum sem er) er velt upp úr sykri/hrásykri, sett í plastpoka og fryst.

Þurrkuð ber
Bláber (eða hvaða ber sem er, þó ekki mjög stórum og safaríkum) eru sturtað í ofnskúffu sem búið er að leggja bökunarpappír á. Sett í ofn og kveikt undir á 50oC í nokkra klukkutíma, ágætt að hafa ofninn örlítið opinn af og til svo rakinn fari út. Ágætt að snúa nokkrum sinnum en ekki nauðsynlegt. Berin þorna og verða „þurrkuð ber“, þvílíkt lostæti og geymast allt árið.

Myndin er af bláberjunum sem ég tíndi á 10 mínútum. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir

Birt:
27. ágúst 2007
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Allsherjar berjauppskriftir“, Náttúran.is: 27. ágúst 2007 URL: http://nature.is/d/2007/08/27/allsherjar-berjauppskriftir/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 28. ágúst 2010

Skilaboð: