orkuaudlindir.isSjálfstæðir rýnihópar almennra borgara leitast nú við að afla sér traustra heimilda og rannsaka aðdraganda og lögmæti sölu HS Orku, samhliða rannsókn hinnar stjórnskipuðu nefndar óháðra sérfræðinga.

Á vefnum orkuauðlindir.is safnast nú saman upplýsandi gögn -undir liðnum ítarefni- og eru þeir sem kunna að gefa upplýsingar um málið hvattir til að senda þær inn til birtingar (netfangið er orkuaudlindir@gmail.com) og taka þannig þátt í að vinna gegn leynd og ógagnsæi í orkuauðlindamálefnum þjóðarinnar og í því prófmáli sem Magma-málið er.

Undirskriftasöfnunin er enn í fullum gangi á vefnum orkuauðlindir.is. Nú þegar hafa á 17 þúsund einstaklingar skrifað undir áskorun um að stjórnvöld komi í veg fyrir söluna á HS Orku til einkaaðila og að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um orkuauðlindirnar.

Björk Guðmundsdóttir mun afhenda stjórnvöldum áskorunina með þeim þúsundum nafna sem safnast saman. Í von um að stjórnvöld hlusti á rödd almennings. Eru allir sem láta sig málið varða hvattir til að láta í sér heyra á þessari ögurstundu og skrifa undir áskorunina á orkuauðlindir.is.

Birt:
5. ágúst 2010
Tilvitnun:
Oddný Eir Ævarsdóttir „Undirskriftasöfnunin heldur áfram - 16 þúsund hafa nú þegar skrifað undir“, Náttúran.is: 5. ágúst 2010 URL: http://nature.is/d/2010/08/05/undirskriftasofnunin-heldur-afram-17-thusund-hafa-/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: