VatnshellirSvandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra opnaði Undirheima Vatnshellis í gær og staðfesti um leið verndaráætlun fyrir þjóðgarðinn Snæfellsjökul.

Vatnshellir
Vatnshellir er í suðurhlíðum Purkhólahrauns. Þjóðgarðurinn hefur unnið að því í samstarfi við sjálfboðaliða að bæta aðgengi að hellinum síðastliðinn vetur. Skýli hefur verið byggt yfir opið niður í hellinn og hringstigi lagður niður. Með skýlinu er komið í veg fyrir að snjór safnist fyrir op hellisins og jafnframt gert kleift að loka hellinum en umferð um hann verður aðeins leyfð með leiðsögn. Er það gert til að vernda hellinn sem best og koma í veg fyrir frekari skemmdir á honum.

Fjölmargir hafa lagt á sig ómælda sjálfboðavinnu við framkvæmdirnar en hugmyndasmiður verkefnisins er Árni B. Stefánsson hellakönnuður sem ásamt Hjörleifi Stefánssyni arkitekt ýtti verkinu úr vör og kveikti áhuga heimafólks á því. Meðlimir í Lionsklúbbi Nesþinga ásamt fleirum hafa unnið við hellinn en Umhverfisstofnun og Snæfellsbær hafa lagt fjármuni í verkið.

Verndaráætlun
Markmið verndaráætlunar fyrir þjóðgarðinn Snæfellsjökul sem umhverfisráðherra undirritaði er að tryggja vernd náttúru- og menningarminja. Í þessu felst meðal annars að náttúra þjóðgarðsins fái að þróast eftir eigin lögmálum eins og kostur er um leið og almenningi er gert kleift að njóta þess sem svæðið hefur upp á að bjóða. Fleiri ferðamönnum fylgir aukið álag á náttúruna og eykur það þörfina á skipulagi vegna verndunar innan þjóðgarðsins.

Mynd: Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra við opnun Undirheima, Umhverfisráðuneytið.

Birt:
16. júní 2010
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Undirheimar Vatnshellis opnaðir og verndaráætlun staðfest “, Náttúran.is: 16. júní 2010 URL: http://nature.is/d/2010/06/16/undirheimar-vatnshellis-opnadir-og-verndaraaetlun-/ [Skoðað:16. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: