Nú er talað um að innleiða ný gildi. Vistvernd í verki svarar kalli tímans með 15 tíma námskeiði fyrir leiðbeinendur dagana 18.-20. september nk.

Á námskeiðinu læra þátttakendur listina að leiðbeina. Farið verður í gegnum helstu verkefni leiðbeinandans, s.s. að stýra fundum, kveikja áhuga, vinna saman í hóp og miðla fróðleik um leiðir til sparnaðar og vistvænni lífsstíls.

Námskeiðið veitir þeim sem áður hafa tekið þátt í visthópi réttindi til að leiðbeina á námskeiðum Vistverndar í verki. Námskeiðið er einnig upplagt til upprifjunar fyrir þá sem áður hafa tekið þátt. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Bryndís Þórisdóttir, fyrrverandi verkefnisstjóri Vistverndar í verki verða haldin sem hér segir

18. september kl. 13:00-18:00
19. september kl. 10:00-15:00
20. september kl. 10:00-15:00

Nokkur sveitarfélög styrkja fólk til þátttöku en námskeiðsgjald er kr. 25.000. Vinsamlegast skráið þátttöku á netfandið vistvernd@landvernd.is fyrir miðvikudag 16. september.

Nánari upplýsingar hjá Sigrúnu Pálsdóttur í síma 552 5242 og www.landvernd.is

Birt:
11. september 2009
Tilvitnun:
Sigrún Pálsdóttir „Viltu gerast leiðbeinandi hjá Vistvernd í verki“, Náttúran.is: 11. september 2009 URL: http://nature.is/d/2009/09/11/viltu-gerast-leiobeinandi-hja-vistvernd-i-verki/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: