Hinn 9. maí síðastliðinn samþykktu ráðherrar þáverandi ríkisstjórnar fyrir hönd ríkisins samkomulag um yfirtöku Landsvirkjunar á vatnsréttindum ríkisins í neðri hluta Þjórsár án nokkurs fyrirvara í þágu fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs andmælti þessu á þeirri forsendu að þetta væri gert án heimildar í lögum og fór fram á að Ríkisendurskoðun kannaði hvort þetta stæðist lög.
Í dag birti Ríkisendurskoðun niðurstöður sínar þar sem fram kemur að gagnrýni VG var á rökum reist og að umrætt samkomulag sé ekki bindandi fyrir ríkið enda skorti nauðsynlegar lagaheimildir.

Í niðurstöðunum segir m.a. um þetta efni:
„Að mati Ríkisendurskoðunar þarf að afla sérstakrar lagaheimildar til þess að ráðstafa þeim réttindum sem samkomulag íslenska ríkisins og Landsvirkjunar frá 9. maí 2007 um yfirtöku vatnsréttinda í neðri hluta Þjórsár mælir fyrir um. Því hefði verið rétt og eðlilegt að gera umrætt samkomulag með fyrirvara um samþykki Alþingis. Á meðan sérstök lagaheimild liggur ekki fyrir er samkomulagið að mati Ríkisendurskoðunar ekki bindandi fyrir ríkissjóð.“

Ástæða er til að vekja athygli á því að Ríkisendurskoðun fjallaði um andmæli ráðuneytanna varðandi ráðstöfun á eignarréttindum ríkisins en komst að þeirri niðurstöðu að röksemdir þeirra dugi ekki „til að hagga þeirri niðurstöðu stofnunarinnar að samkomulagið feli í sér ráðstöfun á eignarréttindum ríkisins, sem klárlega falli undir ákvæði 29. greinar fjárreiðulaga, þó tímabundin séu.“

Niðurstaða Ríkisendurskoðunar hlýtur að teljast áfellisdómur yfir vinnubrögðum stjórnvalda. Vinstrihreyfingin grænt framboð mun fara fram á að þegar í stað verði fallið frá fyrirhuguðum virkjunarframkvæmdum enda eru ekki fyrir þeim lagaheimildir. Þingflokkur VG hefur þegar óskað eftir að fram fari umræða um þetta efni á Alþingi.

Myndin sýnir jarðrask Landsvirkjunar við Þjórsá. Myndin er tekin við Skarðsfjall að morgni 3. desember 2007. Ljósmyndarar: Albert og Ólafur Sigurjónssynir en myndin er tekin úr flugvél.
Birt:
6. desember 2007
Tilvitnun:
Vinstirhreyfingin grænt framboð „Neðri hluti Þjórsár: Ríkisendurskoðun staðfestir gagnrýni VG að lagaheimild skorti“, Náttúran.is: 6. desember 2007 URL: http://nature.is/d/2007/12/06/neori-hluti-thjorsar-rikisskooun-staofestir-gagnry/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: