Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins og Ian Whitting, sendirherra Bretlands á Íslandi, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu umhverfisráðuneytis Íslands og viðskipta- og nýsköpunarráðuneytis Bretlands um samstarf þjóðanna á sviði rannsókna og eftirlits með með eldsumbrotum á Íslandi og umhverfisáhrifum og áhættu af völdum þeirra.

Yfirlýsingin er undirrituð í kjölfar vaxandi samstarfs íslenskra og breskra vísindamanna í tengslum við eldgosið í Eyjafjallajökli. Vísindamenn frá Bresku veðurstofunni, Bresku jarðfræðistofnuninni og fleiri breskum stofnunum komu hingað til lands í vor þegar Eyjafjallajökull gaus og hittu íslenska vísindamenn og skiptust á upplýsingum og þekkingu.

Upplýsingar frá íslenskum vísindamönnum reyndust mikilvægar í starfi breska Neyðarvísindaráðsins (SAGE) sem sir John Beddington, vísindaráðgjafi bresku ríkisstjórnarinnar, fer fyrir. SAGE var skipað jarðfræðingum, veðurfræðingum og loftslagsvísindamönnum. Ráðið veitti bresku ríkisstjórninni upplýsingar um eldgosið í Eyjafjallajökli og ráðgjöf um viðbrögð við því.

Veðurstofa Íslands hefur þegar undirritað viljayfirlýsingar um samstarf við Bresku veðurstofuna, Bresku jarðfræðistofnunina og Breska veðurrannsóknarsetursins. Þá hefur Breska veðurstofan gert samning við Bresku loftferðastofnunina um rannsóknir á öskuskýjum með flugvélum þegar annað eldgos hefst á Íslandi.

Grafík: Elgos og jökull, Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran.is.

Birt:
15. desember 2010
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Samstarf Íslands og Bretlands á sviði rannsókna og eftirlits með eldsumbrotum“, Náttúran.is: 15. desember 2010 URL: http://nature.is/d/2010/12/15/samstarf-islands-og-bretlands-svidi-rannsokna-og-e/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: