Sumardagur á sveitamarkaði í Eyjafjarðarsveit hefur nú göngu sína sjötta sumarið. Eins og áður er markaðurinn á blómum prýddu torgi Gömlu Garðyrkjustöðvarinnar við Jólagarðinn. Óhætt er að segja að á markaðinum sé fjölbreyttur varningur í boði. Má þar nefna brodd, brauð og kökur af ýmsu tagi, sultur og saftir svo eitthvað sé nefnt. Einnig allskonar handverk svo sem prjónavörur, þæfða ull, vörur úr mokkaskinni, dúkkuföt, skartgripi og ótal margt annað sem gleður augað.

Notalegt er að setjast niður og gæða sér á nýbökuðum vöfflum með rabarabarasultu beint úr pottinum og rjúkandi kaffi og kakói.

Seljendur eru flestir heimamenn og úr nágrannasveitum eða hagleiksfólk sem á leið um og staldrar við með vöru sína. Þetta skapar skemmtilega fjölbreytni sem markaðurinn er þekktur fyrir.

Samstarfshópurinn Fimmgangur heldur utan um sveitamarkaðinn og leggur mikið upp úr að varningurinn sem boðinn er sé heimaunninn eða falli vel að umhverfinu og sveitalífinu.

Fyrsti markaður sumarsins verður 10. júlí og svo alla sunnudaga í sumar til og með 14. ágúst. Sveitamarkaðurinn er opinn frá kl. 11 til 17. Allar frekari upplýsingar gefur Margrét gsm: 857-3700 eða tölvupóstur: sveitamarkadur@live.com.

Sjá Sveitamarkað í Eyjafjarðarsveit hér á Grænum síðum.

Birt:
23. júní 2011
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Berghildur Ólafsdóttir „Sveitamarkaður í Eyjafjarðarsveit 2011“, Náttúran.is: 23. júní 2011 URL: http://nature.is/d/2011/06/23/sveitamarkadur-i-eyjafjardarsveit-2011/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: