Styrkur svifryks verður sennilega yfir heilsuverndarmörkum í dag, 19. maí. Ástæðan er líklega uppþyrlun ryks og úr umhverfi og af umferðargötum.

Aðalmælistöðin við Grensásveg og farstöð Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur sýna svifryksgildi yfir heilsuverndarmörkum. Styrkur svifryks 878 míkrógrömm á rúmmetra við Grensásveg klukkan 11.30 en heilsuverndarmörkin eru 50.

Raki er lítill i lofti og skapar það skilyrði til svifryksmengunar, þá eru götur þurrar og vindur töluverður. Þeir sem eru með viðkvæm öndunarfæri ættu taka tillit til aðstæðna og fylgjast með loftgæðum á vefmæli borgarinnar sem sýnir svifryksmengun við Grensásveg.

Búist er við svipuðum veðurskilyrðum á morgun.

Sjá vefmæli Reykjavíkurborgar hér.

Birt:
19. maí 2011
Tilvitnun:
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur „Svifryk yfir mörkum í Reykjavík í dag“, Náttúran.is: 19. maí 2011 URL: http://nature.is/d/2011/05/19/svifryk-yfir-morkum-i-reykjavik-i-dag/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: