Landgræðsla ríkisins heldur opið málþing um alaskalúpínu í Gunnarsholti, þriðjudaginn 17. apríl, kl. 12:30-16:00.

Á undanförnum árum hefur verið unnið að fjölbreyttum rannsóknum á alaskalúpínu og vistfræði hennar. Á málþinginu verða þessar rannsóknir kynntar.

Dagskrá:

12:00 Súpa og brauð.

12:30 Málþing sett  - Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri.

12:45 Ágengar aðfluttar tegundir - Kristín Svavarsdóttir, Landgræðslu ríkisins.

13:00 Greining lúpínu með fjarkönnun - Arna Björk Þorsteinsdóttir, Landgræðslu ríkisins.

13:15 Endurmælingar á gróðri í lúpínubreiðum 2011 - Borgþór Magnússon, Náttúrufræðistofnun Íslands.

13:35 Leiðir til að stýra lúpínu - Magnús H. Jóhannsson, Landgræðslu ríkisins.

13:50 Dýralíf í lúpínu - Brynja Davíðsdóttir, Landbúnaðarháskóla Íslands.

14:05 Kaffihlé.

14:25 Áhrif lúpínu á endurheimt birkis - Inga Vala Gísladóttir, Landbúnaðarháskóla Íslands.

14:40 Skordýrabeit í lúpínubreiðum - Brynja Hrafnkelsdóttir, Rannsóknastöð skógræktar, Mógilsá.

14:55 Lúpínuumræðan - Hildur Harðardóttir, M.A. í mannvistfræði.

15:10 Umræður og fyrirspurnir.

16:00 Málþingi slitið.

Fundarstjóri: Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi umhverfisráðuneytisins.

Aðgangur er ókeypis. Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrir miðvikudaginn 11. apríl á netfangið almar@land.is.

Ljósmynd: Alaskalúpína, Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
13. apríl 2012
Tilvitnun:
Landgræðsla ríkisins „Málþing um niðurstöður lúpínurannsókna“, Náttúran.is: 13. apríl 2012 URL: http://nature.is/d/2012/04/13/malthing-um-nidurstodur-lupinurannsokna/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: