Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnanir, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, Kuðunginn fyrir árið 2010. Kuðungurinn verður afhentur á degi umhverfisins 25. apríl.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur sem er tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum. Til að koma til álita við veitingu Kuðungsins þarf fyrirtækið eða stofnunin að hafa skarað fram úr á einu eða fleiri eftirtöldum sviðum: Umhverfisstjórnun, innleiðingu nýjunga í umhverfisvernd, hreinni framleiðslutækni, lágmörkun úrgangs, mengunarvörnum, umhverfisvænni vöruþróun, framlagi til umhverfismála eða vinnuumhverfi.

Tillögur skulu berast umhverfisráðuneytinu eigi síðar en 25. mars næstkomandi, merktar ,,Kuðungurinn 2010", á póstfangið postur@umhverfisraduneyti.is eða með pósti í umhverfisráðuneytið, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík.

Úthlutunarnefnd Kuðungsins hefur verið skipuð. Í henni sitja Sigþrúður Jónsdóttir formaður, skipuð af umhverfisráðherra, Margrét Ingþórsdóttir fyrir hönd Alþýðusambands Íslands, Ragnheiður Héðinsdóttir fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins og Morten Lange fyrir hönd félagasamtaka á sviði umhverfismála..

Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Sjá þau fyrirtæki sem hlotið hafa Kuðunginn hingað til hér á Grænum siðum.

Grafík: Kristín Þorkelsdóttir, grafískur hönnuður, hannaði merki fyrir Kuðunginn og það fyrirtæki sem hlýtur viðurkenninguna hefur rétt til að nota merkið í eitt ár. Á hverju ári er svo fenginn nýr listamaður til að hanna nýjan verðlaunagrip (Kuðung) sem Kuðungshafinn fær til eignar.

Birt:
3. mars 2011
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Óskað eftir tilnefningum vegna Kuðungsins 2010“, Náttúran.is: 3. mars 2011 URL: http://nature.is/d/2011/03/03/oskad-eftir-tilnefningum-vegna-kudungsins-2010/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 4. mars 2011

Skilaboð: