Aðföng hafa tilkynnt matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um innköllun á ávaxtablöndunni Frugt til Smoothies „Exotic Yellow“ þar sem aðskotahlutur fannst í einni pakkningu af vörunni.  Um er að ræða varúðarráðstöfun og einskorðast innköllunin eingöngu við vöru með eftirfarandi upplýsingum:

Tegund innköllunar: Aðskotahlutur.
Vöruheiti: Frugt til Smoothies „Exotic Yellow“.
Umbúðir: Poki.
Nettóþyngd: 391 g
Framleiðandi: Zhejiang Zhongda Newland Co. Ltd. Í Kína fyrir Dansk Supermarked A/S í Danmörku.
Geymsluskilyrði: Frystivara.
Best fyrir: 14.10.2011 (prentað neðst á bakhlið).
Pökkunardagur: 14.04.2010.
Strikanúmer: 5701012876748.  
Dreifing: Verslanir Bónuss og Hagkaupa um land allt.

Frugt til Smoothies „Exotic Yellow“ með ofangreindri best fyrir merkingu er ekki lengur á markaði.  
Neytendur sem eiga  í fórum sínum Frugt til Smoothies „Exotic Yellow“ með ofangreindri best fyrir merkingu eru beðnir um að hafa samband við Aðföng í síma 530 5645 eða á netfangið gaedastjori@adfong.is.

Myndin er af ávaxtablöndunni sem innkölluð hefur verið.

Birt:
27. janúar 2011
Tilvitnun:
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur „Innköllun vöru - Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur“, Náttúran.is: 27. janúar 2011 URL: http://nature.is/d/2011/01/27/frettatilkynning-fra-matvaelaeftirliti-heilbrigdis/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: