Eru loftslagsbreytingar raunverulegar? Eru þær af mannavöldum? Af hverju er ekki verið að gera neitt í málunum ef þær eru raunverulegar? Koma þær okkur við hér á Íslandi? Hvað get ég gert?

Sigurður Eyberg, umhverfis- og auðlindafræðingur mun ræða þessar spurningar á opnum fyrirlestri í Andrews Theatre föstudaginn 13. apríl nk. kl. 13:00.

Forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson mun setja viðburðinn með frásögn af ferð sinni með Al Gore til Suðurheimskautslandsins fyrr á árinu.

Viðburðurinn er samstarfverkefni Climate Reality Project, samtaka Nóbelsverðlaunahafans Al Gore sem helgar sig upplýstri umræðu um loftslagsbreytingar, Garðarshólms sem er miðstöð sjálfbærni sem er í smíðum á Húsavík, Stofnunar Sæmundar Fróða, rannsóknar- og þjónustustofnunar á sviði sjálfbærrar þróunar og þverfaglegra viðfangsefna innan Háskóla Íslands og Keilis, miðstöðvar fræða, vísinda og atvinnulífs.

Birt:
13. apríl 2012
Höfundur:
Keilir
Tilvitnun:
Keilir „Loftslagsbreytingar - vísindaskáldskapur eða raunveruleiki“, Náttúran.is: 13. apríl 2012 URL: http://nature.is/d/2012/04/04/loftslagsbreytingar-visindaskaldskapur-eda-raunver/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 4. apríl 2012
breytt: 13. apríl 2012

Skilaboð: