Í þröngum fjörðum Vestfjarðakjálkans hafa Íslendingar í hundruðir ára lifað í sambýli við myrkur, einangrun og óútreiknanleg náttúruöfl.
Í gegnum þá sögu hafa Vestfirðingar tileinkað sér atgervi, ósérhlífni og þor sem á sér fáa líka.
Þessir eiginleikar sjást hvergi skýrar en í öflugu nýsköpunarstarfi í atvinnumálum Vestfjarða.

Í byrjun nóvember sækir Framtíðarlandið Vestfirðinga heim og efnir um leið til þingsins Vetrarljós þar sem sest verður á rökstóla um stöðu nýsköpunar á svæðinu.
Á þinginu mun Framtíðarlandið leiða saman sérfræðinga á sviði nýsköpunar og fremstu eldhuga vestfirsks atvinnulífs.

Um er að ræða tímamótaviðburð fyrir alla sem láta sig vestfirsk atvinnumál varða. Þingið fer fram í Edinborgarhúsinu laugardaginn 10. nóvember, milli 9 og 17. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn, en þátttakendur skulu tilkynna komu sína á vef Framtíðarlandsins með skráningu sem brátt verður sett upp.

Dagskrá: 

Vestfirðir á teikniborðinu - Vetrarþing Framtíðarlandsins

Edinborgarhúsinu, Ísafirði, laugardaginn 10. nóvember 09:00-17:00

Morguný ing – Ævintýri í raunveruleikanum:
Fundarstjóri: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fréttamaður. Þingstjórar eru Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir og Martha Lilja Marthensdóttir Olsen

9:00 Þingstjóri setur þingið

 Morguný ing: Nýsköpun í verki 

9:15 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson opnar morguný ingið
9:40 Sjóstöng í Sókn | Elías Guðmundsson fjallar um sjóstangveiði á Vestfjörðum
10:05 Er eithvað á fólkinu að græða? | Helga Vala Helgadóttir ræðir um menningar- og atvinnulíf á Vestfjörðum

10:30 Kaffihlé

Morguný ing: Nýsköpun í verki frh.

10:40 Kyngikraftur náttúrunnar | Aðalbjörg Þorsteinsdóttir flytur erindi um Villimey slf.
11:05 Strandagaldur | Sigurður Atlason fer yfir sögu Galdrasýningar á Ströndum og framtíðarsýn.
11:30 Sigmundur Davíð tekur fyrirlestra saman og stjórnar umræðum

12:15 Hádegisverður

13:00 Tónlistaratriði | Tríó Kristjáns Hannessonar, Hrólfur Vagnsson og Haukur Vagnsson
13:30 Viðburðir og ímynd Ísafjarðarbæjar í máli og myndum | Rúnar Óli Karlsson
13:50 Ímynd og ásýnd Vestfjarða | Sverrir Björnsson hjá Hvíta húsinu

Kl. 14:30 - Kaffihlé

Eftirmiðdagspallborð: Auðlind sérstöðunnar

14:50 Björg Eva Erlendsdóttir opnar eftirmiðdagsþingið og stýrir pallborði:
  • Peter Weiss | Háskólasetur Vestfjarða – Ísafirði
  • Alda Davíðsdóttir | Sjóræningjahúsið – Patreksfirði
  • Guðmundur Guðjónsson | Kalkþörungaverksmiðjunni – Bíldudal
  • Harpa Grímsdóttir | Veðurstofu Íslands – Snjóflóðasetur Ísafirði
  • Arthúr Bogason | Félag smábátaeigenda

16:00 Lokaorð | Ólafur Sveinn Jóhannesson

16:30 Þingstjóri tekur þingið saman og slítur því

Kvöldverður hefst klukkan 19:30 á veitingastaðnum Við Pollinn á Hótel Ísafirði. Matseðill er svohljóðandi:

  • Steiktur saltfiskur á seljurótarmauki með tómatsultu
  • Léttsteiktar nautalundir með kartöflupressu og madeiragljáa
  • Jarðarberja- og vanillufrauð með pistasíuís
  • Te eða kaffi

Kvöldverðartilboð hljóðar upp á 5.100 á mann, og tilkynna skal um þátttöku á netfangið johanna.k.magnusdottir@gmail.com

Framtíðarlandið hvetur gesti til að nýta sér þjónustu Hótels Ísafjarðar á meðan á dvölilnni stendur.

Birt:
1. nóvember 2007
Höfundur:
Framtíðarlandið
Tilvitnun:
Framtíðarlandið „Vestfirðir á teikniborðinu - Vetrarþing“, Náttúran.is: 1. nóvember 2007 URL: http://nature.is/d/2007/10/29/vetrarsljs-vestfjararing-vestfjar/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 29. október 2007
breytt: 1. nóvember 2007

Skilaboð: