Umhverfisstofnun vinnur að undirbúningi friðlýsingar Skerjafjarðarsvæðisins í samræmi við náttúruverndaráætlun. Drög að tillögu til umhverfisráðherra um friðlýsingu innan bæjarmarka Garðabæjar, alls um 4,27 km2 liggja nú fyrir. Einnig er unnið að friðlýsingu nyrsta hluta Búrfellshrauns, Gálgahrauns í Garðabæ, alls um 1,08 km2.

Í samvinnu við bæjarstjórn Garðabæjar eru drög að friðlýsingu ofangreindra svæða hér með auglýst til kynningar. Þetta er í fyrsta sinn sem sú leið er farin að auglýsa opinberlega tillögur að friðlýsingum og væntir stofnunin þess að hún falli í góðan jarðveg.

Frestur til að skila inn athugasemdum og/eða ábendingum er til 6. ágúst 2009. Skila skal athugasemdum til Umhverfisstofnunar og skulu þær vera skriflegar og undirritaðar.

Meðfylgjandi eru drög að tillögu til umhverfisráðherra að friðlýsingu Skerjafjarðarsvæðisins innan Garðabæjar og Gálgahrauns, ásamt kortum.

Mynd úr Gálgahrauni af vef Hraunavina hraunavinir.neT.
Birt:
14. júlí 2009
Höfundur:
Umhverfisstofnun
Uppruni:
Umhverfisstofnun
Tilvitnun:
Umhverfisstofnun „Kynning á tillögum að friðlýsingum í Garðabæ“, Náttúran.is: 14. júlí 2009 URL: http://nature.is/d/2009/07/13/kynning-tillogum-ao-friolysingum-i-garoabae/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 13. júlí 2009
breytt: 14. júlí 2009

Skilaboð: