Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, Kuðunginn fyrir árið 2007. Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum.

Tillögur skulu berast umhverfisráðuneytinu eigi síðar en föstudaginn 4. apríl næstkomandi, merktar ,,Kuðungurinn 2007", á póstfangið postur@umhverfisraduneyti.is eða með pósti í umhverfisráðuneytið, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík.

Umhverfisráðuneytið veitti Kuðunginn fyrst árið 1995, þá fyrir starf á árinu 1994. Sjá hér á Grænum síðum þau fyrirtæki sem hlotið hafa Kuðunginn til þessa.

Myndi: Á hverju ári er listamaður fenginn til að hanna nýjan Kuðung sem Kuðungshafar fá til eignar. Í fyrra var það Kogga sem gerði Kuðunginn. Kristín Þorkelsdóttir, grafískur hönnuður, hannaði merki fyrir Kuðunginn og það fyrirtæki sem hlýtur viðurkenninguna hefur rétt til að nota merkið í eitt ár.
Birt:
3. mars 2008
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Umhverfisráðuneytið óskar eftir tilnefningum til Kuðungsins 2007“, Náttúran.is: 3. mars 2008 URL: http://nature.is/d/2008/03/02/umhverfisraouneytio-oskar-eftir-tilnefningum-til-k/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 2. mars 2008
breytt: 3. mars 2008

Skilaboð: