Veðurstofa Íslands spáir slæmu veðri seinni hluta dagsins með snörpum vindhviðum fram eftir kvöldi. Búast má við að vindur færist í aukana upp úr klukkan 15 í Vestmannaeyjum og færist svo hratt suðvestur og vestur yfir landið með mikilli úrkomu, fyrst rigningu og síðar snjókomu. Það má búast við snörpum vindhviðum á Reykjanesi, á höfuðborgarsvæðinu,  á öllu Snæfellsnesi , Vestfjörðum og Norðvesturlandi.

Í kjölfarið mun kólna snögglega og mikil hálka verður á Suður- og Vesturlandi  með mikilli ísingu og roki og eru vegfarendur því  hvattir til að fylgjast með veðri á www.vedur.is  eða www.belgingur.is  og færð á vegum www.vegagerdin.is áður en lagt er af stað og fara varlega.

Einnig má sjá veðurspá Veðurstofu Íslands hér á Náttúran.is.

Þar sem búast má við snörpum vindhviðum  og úrkomu eru húseigendur og verktakar á þessum stöðum beðnir að huga að lausamunum og hreinsa frá niðurföllum.  Stórstreymt verður milli 17 og 19 við suðvestanvert landið og eru eigendur báta þar hvattir til að festa þá vel.

Birt:
11. desember 2008
Höfundur:
Einar Bergmundur
Tilvitnun:
Einar Bergmundur „Slæm veðurspá“, Náttúran.is: 11. desember 2008 URL: http://nature.is/d/2008/12/11/slaem-veourspa/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: