Sparperur nota einungis um 15-20% af orku venjulegra glópera auk þess sem líftími þeirra er allt að 10 sinnum lengri. Glóperubann tók gildi hér á landi þ. 1. september 2012. Bannið byggir á Evróputilskipun (Ecodirective 32/2005) til að stuðla að rafmagnssparnaði en um 19% af raforkunotkun heimsins fer í lýsingu.

Þegar öllum glóperum hefur verið skipt út fyrir sparperur hér á landi sparast sem samsvarar einni 20MW virkjun.

Birt:
18. maí 2014
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Lýsing“, Náttúran.is: 18. maí 2014 URL: http://nature.is/d/2007/06/25/lysing/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 25. júní 2007
breytt: 18. maí 2014

Skilaboð: